Menning
Heyskapur við Gömlubúð
Heyskapur við Gömlubúð
Mynd 1 af 3
1 2 3

08.07.2010

Börnin í gamaldags heyskap

Á þriðjudaginn fór barnastarf Menningarmiðstöðvar í heyskap.  Ekki hafði viðrað vel til þess háttar starfa svo að jafnvel var haldið að fresta yrði heyskap að þessu sinni.  En hvað um það hópurinn lagði af stað frá Nýheimum og gekk heim að Gömlu búð og viti menn, Björn staðarhaldari var búin að slá talsvert fyrir hópinn. Björn sýndi börnunum hvernig var slegið með orfi og ljá og leyfði fullorðna fólkinu að prófa.  Svo var farið í leik og hugsað sér að búið væri að slá á blautum engjum og það þyrfti að bera heyið á þurra sléttan blett svo hægt væri að þurrka það.  Voru teknar fram gamlar heybörur frá Lækjanesi og heyið borið í því  góðan stað, tók þetta talsverðan tíma og fengu allir að prófa að bera heyið.  Þegar heyið var komið á réttan stað var farið að ká í  og svo rifjað og að lokum bundið í bagga með hrosshársreipi og högldum.  Að lokum var byggðasafnið skoðað,  mjög góður dagur

Senda grein

Menning

Börnin í gamaldags heyskap

8.7.2010 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica