Sýning á verkum David White fram undan
Menningarmiðstöð sýnir verk eftir David White
David White er mörgum hornfirðingum kunnur en hann dvaldi hér um tíma fyrir mörgum árum og teiknaði myndir af svæðinu og fólkinu hérna. Nú er svo komið að Menningarmiðstöðin hefur ákveðið í samstarfi við David að hafa sýningu á verkum eftir hann, en hugmyndin er sú að safna þeim verkum sem til eru hér á svæðinu saman í sýningu, ásamt nýrri verkum. Þeir sem eru áhugasamir um þetta verkefni og eiga myndir eftir David geta haft samband við Guðlaugu Ósk í síma 4708057 eða sent tölvupóst á gudlaugp@hornafjordur.is Fyrirhugað er að hafa sýninguna í nóvember og mun David sjálfur sýna úrval verka sem hann hefur gert frá því að hann dvaldi hér síðast árið 1990, en með þessu vill hann gefa hugmynd um hvað hann hefur verið að fást við síðustu 20 árin. Sýningin verður að hluta til sölusýning og verður í miðrými Nýheima.



