Menning
Ómar Guðjónsson og félagar
Ómar Guðjónsson og félagar

24.11.2003

Útgáfutónleikar Ómars Guðjónssonar á Hótel Höfn

miðvikudaginn 26. nóvember, kl. 20:30.

Ómar hefur nú þegar látið að sér kveða í íslensku jazzlífi og tók m.a þátt í nýliðinni jazzhátíð í Reykjavík. Nýverið gaf hann út sína fyrstu sólóplötu, Varma land, þar sem með honum leika bróðir hans, Óskar Guðjónsson á saxófóna, Þórður Högnason á bassa og Helgi Svavar Helgason á trommur. Á tónleikunum á Höfn mun hann kynna diskinn ásamt Óskari, Helga og Jóhanni Ásmundssyni sem mun spila á kontrabassa.

Aðspurður í viðtali við Morgunblaðið 7. nóvember s.l. segir Ómar að djass byggist á frelsi og meðspilurunum. “Maður verður að hlusta og skynja það sem aðrir eru að gera. Djass er auðvitað ofsalega víð tónlistarstefna og erfiður að njörva niður, en mesti kosturinn er að mínu mati að maður fær að leika sér svolítið og vera frjáls í tónlistinni. Það er erfitt að skilgreina hreinræktaðan djass. Platan er mjög einlæg og hlýleg. Lögin eru stutt og mikil áhersla lögð á að gera laglínurnar flottar. Það er ekkert tíu mínútna langt sólóa-lag á henni.

Ómar Guðjónsson (fæddur 1978) byrjaði að spila á gítar 12 ára gamall og hóf nám í FÍH tveimur árum seinna. Þar nam hann fyrst hjá Hilmari Jenssyni en síðan hjá Jóni Páli Bjarnasyni og síðast hjá Sigurði Flosasyni. Ómar útskrifaðist úr FÍH í febrúar sl.
Síðustu ár hefur Ómar verið mikið að spila opninberlega og hefur starfað með fjölda hljómsveita en Funkmaster 2000, Desmin og HOD eru þær hljómsveitir sem að hann hefur verið einn af stofnendum af. Ómar var meðlimur í kvartettnum Off minor sem spilaði í Norðurlandajazzkeppni ungliða í Helsinki árið 2002 á vegum “Young Nordic Jazz Comets” og leiddi síðan eigin sveit, HOD, í Ósló í þessari sömu keppni. HOD tríóið hefur látið mikið að sér kveða undanfarið, en það er skipað auk Ómars, þeim Davíð Þór Jónssyni á Hammondorgel og Helga Svavari Helgasyni á trommur.

Senda grein

Menning

Útgáfutónleikar Ómars Guðjónssonar á Hótel Höfn

miðvikudaginn 26. nóvember, kl. 20:30.

24.11.2003 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica