Fyrsta ferðin í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar - Fuglaskoðun
Fuglaskoðun í Óslandi
Nú á þriðjudaginn var fyrsta ferð sumarsins í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar. Farið var með átta hressa krakka í fuglaskoðunarferð í Óslandið, en vani er að hefja sumarstarfið með fuglaskoðunarferð.
Leiðsögumaðurinn í ferðinni var Björn Arnarsson safnvörður en hann er mikill áhugamaður um fugla. Krían er búin að koma sér fyrir í Óslandinu en er bara rétt að byrja að verpa núna sökum kulda og ætisleysis.
Krakkarnir sáu því enga Kríuunguna í þetta sinn en aftur á móti sáu þau æðarunga. Einnig sáu þau endur á Óslandstjörninni, Máva og vaðfugla, en margir krakkanna höfðu hjólahjálmana sína á hausnum svo að Krían goggaði ekki í þá.
Við þökkum Bjössa kærlega fyrir leiðsögnina og minnum á að næsta ferð hjá Barnastarfinu er inn í Hoffell en þar verður farið í heitu pottana. Munið svo að skrá ykkur á Bókasafninu í allar ferðir krakkar.
Hægt er að skoða fleiri myndir á Facebook síðu Menningarmiðstöðvar



