Jógvan Hansen og Friðrik Ómar heimsækja Hornfirðinga
Þeir félagar Friðrik Ómar og Jógvan Hansen eru á fleygiferð um landið vítt og breitt nú í sumar.
Flutt eru lög af plötunni VINALÖG sem inniheldur íslensk og færeysk dægurlög en platan kom út árið 2009 og sló í gegn á Íslandi og í Færeyjum. Söngvararnir spjalla við gesti, syngja og leika á hljóðfærin sjálfir.
Tónleikarnir fara fram í Hafnarkirkju mánudagskvöldið 27. júní n.k. og hefjast kl. 20. Miðaverð er kr.2000.-
Frábær kvöldstund sem enginn má missa af.



