Menning
Gullfjöll
Gullfjöll
Svavar Guðnason

24.06.2011

Opnun Listasafns Hornafjarðar

Opnunarsýning á verkum Svavars Guðnasonar listmálara

Í dag föstudaginn 24. júní opnar nýr sýningasalur Listasafns Hornafjarðar við hátíðlega athöfn.

Salurinn er til húsa í Gömlu Slökkvistöðinni og opnunarsýning er á verkum Svavars Guðnasonar. Sýningar verða á verkum Svavars á sumrin en yfir vetrartímann verður fjölbreytt dagskrá innlendra og erlendra listamanna og til að mynda verður sýning á verkum Jóns Þorleifssonar frá Hólum á haustmánuðum.

Svavar Guðnason fæddist á Hornafirði 18. nóvember 1909 og fór hann til náms til Reykjavíkur og síðar til Kaupmannahafnar þar sem hann kynntist konu sinni, Ástu Eiríksdóttur frá Borgafirði Eystra. Ásta helgaði líf sitt listamanninum og tryggði þeim lifibrauð.

Svavar lést í júní 1988 og eftir andlát hans lagði Ásta mikla áherslu á að æviverk hans yrðu sýndur sá sómi sem hann og þau eiga bæði skilið. Ásta gaf heimasveit Svavars fjöldann allan af verkum og einnig bárust höfðinglegar gjafir úr dánarbúi Svavars og Ástu þegar hún lést í febrúar 2008. Hluti Listasafns Hornafjarðar verður tileinkaður Ástu í svonefndri Ástustofu.

Menntamálaráðherra opnar nýja sýningasalinn og hefst athöfnin kl 16:00
Allir velkomnir.

Senda grein

Menning

Opnun Listasafns Hornafjarðar

Opnunarsýning á verkum Svavars Guðnasonar listmálara

24.6.2011 Menning

Í dag föstudaginn 24. júní opnar nýr sýningasalur Listasafns Hornafjarðar við hátíðlega athöfn.

Salurinn er til húsa í Gömlu Slökkvistöðinni og opnunarsýning er á verkum Svavars Guðnasonar. Sýningar verða á verkum Svavars á sumrin en yfir vetrartímann verður fjölbreytt dagskrá innlendra og erlendra listamanna og til að mynda verður sýning á verkum Jóns Þorleifssonar frá Hólum á haustmánuðum.

Svavar Guðnason fæddist á Hornafirði 18. nóvember 1909 og fór hann til náms til Reykjavíkur og síðar til Kaupmannahafnar þar sem hann kynntist konu sinni, Ástu Eiríksdóttur frá Borgafirði Eystra. Ásta helgaði líf sitt listamanninum og tryggði þeim lifibrauð.

Svavar lést í júní 1988 og eftir andlát hans lagði Ásta mikla áherslu á að æviverk hans yrðu sýndur sá sómi sem hann og þau eiga bæði skilið. Ásta gaf heimasveit Svavars fjöldann allan af verkum og einnig bárust höfðinglegar gjafir úr dánarbúi Svavars og Ástu þegar hún lést í febrúar 2008. Hluti Listasafns Hornafjarðar verður tileinkaður Ástu í svonefndri Ástustofu.

Menntamálaráðherra opnar nýja sýningasalinn og hefst athöfnin kl 16:00
Allir velkomnir.


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica