Listasafn Hornafjarðar opnað
Nýr sýningarsalur
Nýr sýningasalur Listasafns Hornafjarðar var opnaður við hátíðlega athöfn í blíðskaparveðri föstudaginn 24. júní. Svandís Svavarsdóttir starfandi menntamálaráðherra opnaði safnið og um 230 manns mættu á opnunina. Opnunarsýningin er á verkum Svavars Guðnasonar, hornfirðings og listmálara en á meðal verka hans á sýningunni eru Gullfjöllin og Ísabrot.
Á sama tíma var svokölluð Ástustofa opnuð en hún er tileinkuð konu Svavars, Ástu Eiríksdóttur. Ástustofa verður opin allt árið en sýningar í listasalnum verða fjölbreyttar. Opnunartími listasafnsins er 9:00 – 15:30 alla virka daga og 13-17 um helgar í sumar.
Fleiri myndir er hægt að sjá á facebook síðu Menningarmiðstöðvarinnar .



