Menning
Opnun Svavarssýningar 2011 3
Opnun Svavarssýningar 2011 3
Opnun sýningar á verkum Svavars Guðnasonar
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

28.07.2011

Sýningar á Hornafirði

Fjölbreyttir menningarviðburðir á Hornafirði í sumar

Það er búið að vera nóg að gera í menningarviðburðum hér á Hornafirði í sumar og enn er á nógu að taka.

Svavarssýning opnaði 24. júní við mikla viðhöfn og hefur sýningin verið opin á hverjum degi síðan og verður opin út sumarið.

Listamaðurinn Tolli opnaði sölusýningu í lok júní í Kartöfluhúsinu. Síðasta sýningarhelgi er núna um verslunarmannahelgina og eru því síðustu forvöð að skoða sýninguna hans en hún er opin alla daga frá 13-17 fram að lokum sem eru 31 júlí.

Hlynur Pálmason var með sýningu í Graðaloftinu á Humarhátíð við miklar vinsældir. Á föstudaginn í næstu viku, 5. ágúst, verður hann með hljóð og ljósmyndasýningu en hún verður auglýst betur síðar.

Þorvarður Árnason áhugaljósmyndari opnar sýningu í Ráðhúsi Hornafjarðar miðvikudaginn 3. Ágúst klukkan 16. Sýningin ber nafnið Vetur í ríki Vatnajökuls og gefur að líta ljósmyndir úr vetrarríki svæðisins.

Senda grein

Menning

Sýningar á Hornafirði

Fjölbreyttir menningarviðburðir á Hornafirði í sumar

28.7.2011 Menning

Það er búið að vera nóg að gera í menningarviðburðum hér á Hornafirði í sumar og enn er á nógu að taka.

Svavarssýning opnaði 24. júní við mikla viðhöfn og hefur sýningin verið opin á hverjum degi síðan og verður opin út sumarið.

Listamaðurinn Tolli opnaði sölusýningu í lok júní í Kartöfluhúsinu. Síðasta sýningarhelgi er núna um verslunarmannahelgina og eru því síðustu forvöð að skoða sýninguna hans en hún er opin alla daga frá 13-17 fram að lokum sem eru 31 júlí.

Hlynur Pálmason var með sýningu í Graðaloftinu á Humarhátíð við miklar vinsældir. Á föstudaginn í næstu viku, 5. ágúst, verður hann með hljóð og ljósmyndasýningu en hún verður auglýst betur síðar.

Þorvarður Árnason áhugaljósmyndari opnar sýningu í Ráðhúsi Hornafjarðar miðvikudaginn 3. Ágúst klukkan 16. Sýningin ber nafnið Vetur í ríki Vatnajökuls og gefur að líta ljósmyndir úr vetrarríki svæðisins.


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica