Uppskeruhátíð Gömlubúðar og Menningarmiðstöðvar
Töðugjöld í Gömlubúð
Nú á laugardaginn verður uppskeruhátíð Gömlubúðar og Menningarmiðstöðvar.
Boðið verður upp á Töðugjöld, en það er gömul íslensk hátíð þar sem haldið er upp á að heyskapnum sé lokið, en túnið við Gömlubúð var einmitt heyjað um síðustu helgi.
Hátíðin er partur af Lifandi Safni Menningarmiðstöðvar og Gömlubúðar og verður boðið upp á glæsilega dagskrá í tilefni dagsins. Hátíðin hefst klukkan 13:00 og stendur til klukkan 18:00. Öllum er velkomið að fagna Töðugjöldum og fólk er hvatt til að mæta í þjóðbúningi.
Boðið verður upp á þjóðlegar veitingar í tilefni dagsins og hægt er að sjá ítarlega dagskrá hér að neðan.
Hlökkum til að sjá ykkur öll.
Töðugjöld í Gömlubúð Laugardaginn 27. ágúst
Klukkan 13:00 Húsið opnar með mótorhjólasýningu
Klukkan 14:00 Ýmsar uppákomur verða á safninu
Klukkan 15:00 Leikir fyrir börnin
Klukkan 16:00 Hoppukastalar
Klukkan 16:00 Hilmar og fuglarnir stíga á svið
Allir velkomnir og fólk hvatt til að mæta í þjóðbúningi.


