Bókmenntakvöld 10 ára
Hin árlega bókmenntasamkoma í desember á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar er nú haldin í 10. sinn. Á þessum samkomum hafa rithöfundar lesið úr nýútkomnum bókum sínum og saman við dagskrána hefur einnig verið fléttað tónlist. Á þessu tímabili hafa 55 rithöfundar sótt okkur heim að þeim sem nú koma meðtöldum. Það fer vel á því að einn höfundur sem kom með fyrsta hópnum sé nú aftur á ferð. Það er Vigdís Grímsdóttir, er kom hingað árið 1994 og las þá úr bókinni Kaldaljós en les nú úr bókinni Þegar stjarna hrapar. Kaldaljós er einnig á tímamótum því unnin hefur verið kvikmynd upp úr bókinni sem verður frumsýnd 1. janúar nk.
Auk þess að koma fram á kvölddagskrá hafa rithöfundarnir einnig verið fúsir til þess að heimsækja skóla og fyrirtæki og átt þannig þátt í því að gefa tilbreytingu í skammdeginu.
Samkomur þessar, sem hin síðustu ár hafa farið fram í Pakkhúsinu, hafa ætíð verið vel sóttar og hafa gestir Hafnar, rithöfundarnir, sem og gestir hússins notið samverunnar. Til þess að gera slíkar samkomur mögulegar þarf að leita til marga. Fjöldi hornfirskra tónlistarmanna hefur lagt þessu lið s.s. nemar og kennarar Tónlistarskólans svo og kórar. Og Skinney-Þinganes, Landsbankinn og Sparisjóðurinn hafa verið okkar tryggustu fjárhagsbakhjarlar auk Listvinasjóðs Hornafjarðar.
Á þessum tímamótum vill Menningarmiðstöðin færa öllum sem lagt hafa dagskránum lið bestu þakkir og vonumst við til að geta áfram átt góðar stundir saman.
Við vonumst líka eftir því að sjá sem flesta til að fagna 10 ára afmælinu með okkur í Pakkhúsinu, fimmtudagskvöldið 4. desember kl. 20:30. Þá lesa Guðmundur Steingrímsson úr bókinni Áhrif mín á mannkynssöguna, Silja Aðalsteinsdóttir úr bókum Madonnu, Ensku rósirnar og Eplin hans Peabodys, Jón Kalman Stefánsson úr bókinni Snarkið í stjörnunum, Vigdís Grímsdóttir úr bókinni Þegar stjarna hrapar, Ævar Örn Jósepsson úr bókinni Svartir englar og Ingunn Jónsdóttir les úr bókinni Félagsvinurinn, sem Ungmennafélagið í Öræfunum gefur út.


