Fyrsti veggur vetrarins á Bókasafninu
Veggurinn minn
Veggurinn minn er aftur á dagskrá hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar í vetur. Veggurinn minn hefur verið í gangi í rúmt ár og gengið vel. Hann gengur út á að sýna verk eftir sjálfan sig eða aðra og hanga verkin uppi í tvær vikur í senn á Bókasafninu.
Tryggvi Sigurðsson frá Fagurhólsmýri í Öræfum á fyrsta Vegg vetrarins. Tryggvi er fæddur þann 6. Október árið 1931. Hann byrjaði að mála undir leiðsögn í Dagvist eldri borgara á Hornafirði árið 2010 og á veggnum ber að líta hluta af málverkum hans.


