Safnahelgi á Suðurlandi
Helgina 4. til 6. nóvember verður Safnahelgi á Suðurlandi
Safnahelgi á Suðurlandi er orðinn árviss viðburður. Söfn, setur, sýningar, gestastofur, gallerí, matsölustaðir og matarverkefni verða í forgrunni á Suðurlandi helgina 4.- 6. nóvember. Framboðið er mikið og fjölbreytilegt, allt frá listsýningum til markaða og fjölskylduleikja, tónleika og hlaðborða.
Yfirskrift dagskrárinnar er Safnahelgi á Suðurlandi, Matur og menning úr héraði.
Einstaklingar, veitingarstaðir, handverks og matarklasinn, ásamt söfnum á Hornafirði taka þátt í helginni í fyrsta sinn og eru allir viðburðir helgarinnar á Hornafirði ókeypis.
Dagskrá helgarinnar er hægt að finna hér



