Veggurinn minn
Þórgunnur Þórsdóttir
Þórgunnur Þórsdóttir á vegginn minn að þessu sinni. Verkið hennar nefnist Eplasteinn og er ljósmyndaverk og einnig lokaverkefni hennar úr Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Með verkinu sökkvir hún sér í hugarheim barns sem er bæði auðtrúa og hjátrúarfullt með hugmyndinni um að ef þú borðar eplastein að þá vex tré út úr þér. Þórgunnur sýnir með verkinu að flestir hafi ábyggilega heyrt og trúað hlutum sem þessum, hvort sem það tengist skrímslinu inni í skáp eða dúnmjúkum skýjum sem hægt er að hoppa á.
Þórgunnur hefur verið á vappi með myndavélina sína frá árinu 2007 og tekið myndir af ferðum sínum, uppákomum en þó aðallega fólki. Síðastliðið ár hefur hún tekið mikið af ljósmyndum tengdum tónlist, hvort sem það er í tengslum við tónleika, plötuumslög eða tónleikaferðir.



