Menning
Öskudagur 2012
Öskudagur 2012
Öskudagur 2012 4
Mynd 4 af 5
1 2 3 4 5

23.02.2012

Öskudagur í Nýheimum

Epli og tómatafræ í staðinn fyrir nammi

Í gær kenndi ýmissa grasa í Nýheimum vegna Öskudagsins. Mikil umferð var um húsið allan daginn af syngjandi krökkum í allskyns gervi. Starfsfólk Nýheima brá á það ráð að gefa krökkunum ekki nammi í ár heldur fengu allir epli og tómatfræ í pokann sinn.

Yfir 200 krakkar komu í heimsókn og þöndu raddböndin þennan öskudaginn, en dagurinn endaði svo með því að árshátíðarhópurinn í FAS hélt fjölmennt ball fyrir krakkana þar sem kötturinn var sleginn úr tunnunni, aðgangseyririnn fer svo til styrktar félagslífinu í FAS.

Hér að neðan fylgja svo upplýsingar um hvernig á að hugsa um tómatfræin ef einhver skyldi hafa tínt sínum miða í gær og enn er nóg til af fræjum á Bókasafninu ef einhver hefur hug á að fara að rækta tómata.

Gróðursetjið tómatfræin í potti og hafið á hlýjum stað, til dæmis í glugga. Passið að moldin sé rök þegar fræin eru gróðursett. gerið 1 cm djúpar holur með 2 cm millibili og setjið eitt fræ í hverja holu og þekið svo með moldinni. græðlingar ættu að spretta upp eftir 5 til 7 daga. hafið þá alltaf þannig að þeir fái næga sól.

Senda grein

Menning

Öskudagur í Nýheimum

Epli og tómatafræ í staðinn fyrir nammi

23.2.2012 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica