Ráðstefna um Kvískerjasjóð á Smyrlabjörgum 14. mars
Kvískerjaráðstefna
Miðvikudaginn 14. mars næstkomandi verður haldin ráðstefna um Kvískerjasjóð á Smyrlabjörgum í Suðursveit, kynnt verða verkefni sem hafa hlotið styrki frá sjóðnum í gegnum tíðina.
Rútuferð verður frá BSÍ í Reykjavík þann 13. mars klukkan 18:00 og aftur til baka að ráðstefnunni lokinni, ferðin er ráðstefnugestum að kostnaðarlausu. Þeir sem vilja nýta sér ferðina geta sent póst til Bjargar Erlingsdóttur forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar á bjorgerl@hornafjordur.is fyrir klukkan 16:00 fimmtudaginn 1. mars.
Nánari dagskrá er að finna hér að neðan og á heimasíðu sjóðsins www.umhverfisraduneyti.is/kviskerjasjodur
Bent er á slóðina www.rikivatnajokuls/ferdathjonusta þar sem finna má upplýsingar um gistingu á svæðinu. Flugfélagið Ernir flýtur til Hafnar og finna má flugáætlun þeirra á www.ernir.is
Ráðstefna Kvískerjasjóðs
10.00 Setning Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra
10.15 Tengsl loftslags og jökulbreytinga í SA Vatnajökli - Hrafnhildur Hannesdóttir
10:45 Fjallaplöntur, jökulsker og loftslag – Bjarni Diðrik Sigurðsson og fleiri
11:15 Landnám smádýra á jökulskerjum – María Ingimarsdóttir
11:45 Staðbundin óveður á Kvískerjum – Hálfdán Ágústsson
12.15 Matarhlé
13:30 Jökulhlaup úr Skaftárkötlum– Bergur Einarsson
14:00 Eldgos í Öræfajökli 1362 – Ármann Höskuldsson
14.30 Landslag undir jöklum í Öræfum – Helgi Björnsson
15:00 Gróðurframvinda við hörfandi jökla – Kristín Svavarsdóttir og Þóra Ellen Þórhallsdóttir
15:30 Eyðibýli – Gísli Sverrir Árnason og Sigbjörn Kjartansson
16:00 Kaffi og veggspjaldasýning
Búsvæðaval og afkoma óðinshana og þórshana í Öræfum Yann Kolbeinsson
Breytingar á Kotárjökli 1891-2011 Snævarr Guðmundsson, Hrafnhildur Hannesdóttir og Helgi Björnsson
Hæðar- og rúmmálsbreytingar Breiðamerkurjökuls Snævarr Guðmundsson og Helgi Björnsson Rannsóknir á Skaftárkötlum Þorsteinn Þorsteinsson, Tómas Jóhannesson, Eric Gaidos, Viggó Þ. Marteinsson, Andri Stefánsson, Bergur Einarsson og Matthew J. Roberts
Skráning menningarminja í Öræfasveit Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir
Fuglar: nytjar og hefðir Björn Gísli Arnarson
Munnleg hefð Björg Erlingsdóttir
Útivist og afþreying ferðamanna í Vatnajökulsþjóðgarði Þorvarður Árnason
Sjóbirtingur í Hornafirði Jóhannes Sturlaugsson og Gísli Karl Ágústsson
16:30 Pallborðsumræður um sjóðinn og framtíð hans
17:30 Ráðstefnuslit



