Menning
Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson
Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson
Menningarverðlaun 2011

29.02.2012

Gunnlaugur Þröstur hlaut Menningarverðlaunin fyrir árið 2011

Menningarverðlaun Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Á fimmtudaginn í síðustu viku fóru fram árleg Menningarverðlaun í Nýheimum fyrir fullu húsi. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 einstaklingum stofnunum og samtökum sem hafa unnið eða stuðlað að menningarstarfi í samfélaginu. Hlutverk verðlaunanna er þannig ætlað að vera almenn hvatning til eflingar menningar og listastarfs.

Í ár hlutu fimm einstaklingar tilnefningar til Menningarverðlauna en þeir voru:

Gísli Arason fyrir merkilegt starf innan menningarmála gegnum árin og uppbyggingu Byggðarsafns. Eiríkur Hansson fyrir frábæran árangur í tengslum við Legó keppnina.

Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson fyrir fórnfúst starf um áratugaskeið að tónlistarmálum á Hornafirði.

Heiðar Sigurðsson fyrir leiðandi starf innan Hornfirska Skemmtifélagsins.

Elínborg Pálsdóttir fyrir listsköpun sína.

Menningarmálanefnd komst að þeirri niðurstöðu að Menningarverðlaunin hlyti verðskuldað Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson. Tónlistarferill hans spannar yfir langan og breiðan feril. Hann byrjaði aðeins 16 ára að spila í danshljómsveit. Hann söng í Karlakórnum Jökli til fjölda ára, stofnaði Lúðrasveit Hornafjarðar árið 1974 ásamt því að stjórna henni í 20 ár. Einnig stjórnaði hann Skólalúðrasveit Hornafjarðar í 19 ár og hefur stofnað margan annan félagskap á borð við blandaðan kór Heppuskóla og stjórnaði honum, hann stofnaði Jazzklúbb Hornafjarðar, Dixieland hljómsveit og Big Band hljómsveit.

Gunnlaugur Þröstur söng í Kirkjukór Hafnarkirkju í nokkur ár og stjórnaði Harmonikkufélagi Hornafjarðar frá árinu 1994 til ársins 2010. Hann hefur starfað sem tónlistarkennari frá árinu 1972 og starfar ennþá, þeir eru ófáir nemendurnir sem hafa hlotið þeirra forréttinda að vera undir hans leiðsögn.

Við óskum Gunnlaugi Þresti til hamingju með Menningarverlaunin.

Senda grein

29.2.2012 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica