Sýningin á ljósmyndum Runólfs Haukssonar opnar í fremra rými Listasafns
Runólfur Hauksson áhugaljósmyndari opnar sýningu
Sýning á ljósmyndum Runólfs Haukssonar áhugaljósmyndara opnar í fremra rými Listasafns þann 16. mars klukkan 16:00. Sýningin ber heitið Skaftfellsk náttúra og myndirnar eru allar teknar af náttúrunni í sýslunni.
Runólfur Hauksson hefur verið duglegur að taka myndir síðustu árin. Áhugi hans fyrir ljósmyndun kviknaði fyrir alvöru árið 2008 þegar hann starfaði við siglingar á Jökulsárlóninu, þar kemur mikið af fólki í þeim tilgangi að mynda lónið og hann fylgdist með fólki við myndartökurnar og veitti því eftirtekt hversu góðar myndarvélar fólk hafði oft meðferðis.
Eftir sumarið uppfærði Runólfur myndavélakost sinn og fjárfesti í fyrstu alvöru myndarvélinni sinni með skiptanlegum linsum og eftir þá ákvörðun var ekki aftur snúið. Í Byrjun myndaði Runólfur mikið ís enda búin vinna við að sigla um lónið og vissi hversu fallegt myndefnið þar gat verið, þessar myndartökur eru enn í miklu uppáhaldi hjá honum, en í dag eru það Norðurljósin sem fanga huga hans.
Bakgrunnur Runólfs í ljósmyndun er í raun enginn, hann er áhugaljósmyndar af lífi og sál en hann sótti eitt námskeið í photoshop myndvinnslu hjá Sigurði Mar Halldórssyni ljósmyndara og hefur notið góðrar aðstoðar frá Olgeiri Andréssyni áhugaljósmyndara með norðurljósamyndartökur í gegnum tíðina. Runólfur hyggst svo komast lengra í ljósmyndun og stefnir á að eignast öflugri myndarvél.
Á sýningunni verða 22 ljósmyndir og sjón er sögu ríkari. Sýningin mun standa til 4. maí og aðgangur er ókeypis.
Runólfur heldur úti ljósmyndasíðu á Facebook undir nafninu The Aurora photo guide.



