Menning
Opnun sýningar í Listasafni
Opnun sýningar í Listasafni
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

21.03.2012

Opnun ljósmyndasýningu Runólfs Haukssonar

Föstudaginn 16. mars opnuðu tvær sýningar í Listasafninu. Runólfur Hauksson opnaði ljósmyndasýningu með myndum sem hann hefur tekið hér um slóðir síðustu misseri.

Sýningin er sölusýning. Þá opnaði sýning á verkum Gunnlaugs Scheving (1904-1972) og heitir hún Til sjávar og sveita. Gunnlaugur Scheving er meðal helstu listamanna þjóðarinnar og á sýningunni eru sýndar skissur og myndir þar sem viðfangsefnið er maðurinn og umhverfi hans til sjávar og sveita. Sjávarlífsmyndirnar lýsa átökum við náttúruöflin, hafið og veðrið en sveitalífsmyndirnar einkennast af friði og ró.

Báðar sýningarnar eru opnar til  4. maí og er boðið uppá leiðsögn um sýningu Gunnlaugs. Leiðsögnin passar öllum aldurshópum og hægt er að panta leiðsögn í síma 470 8050.

Senda grein

Menning

Opnun ljósmyndasýningu Runólfs Haukssonar

21.3.2012 Menning

Föstudaginn 16. mars opnuðu tvær sýningar í Listasafninu. Runólfur Hauksson opnaði ljósmyndasýningu með myndum sem hann hefur tekið hér um slóðir síðustu misseri.

Sýningin er sölusýning. Þá opnaði sýning á verkum Gunnlaugs Scheving (1904-1972) og heitir hún Til sjávar og sveita. Gunnlaugur Scheving er meðal helstu listamanna þjóðarinnar og á sýningunni eru sýndar skissur og myndir þar sem viðfangsefnið er maðurinn og umhverfi hans til sjávar og sveita. Sjávarlífsmyndirnar lýsa átökum við náttúruöflin, hafið og veðrið en sveitalífsmyndirnar einkennast af friði og ró.

Báðar sýningarnar eru opnar til  4. maí og er boðið uppá leiðsögn um sýningu Gunnlaugs. Leiðsögnin passar öllum aldurshópum og hægt er að panta leiðsögn í síma 470 8050.


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica