Myndlistarsýningin Bland á striga opnar á Hótel Jökli Nesjum
Bland á striga
Myndlistarsýningin Bland á striga opnar á Hótel Jökli Nesjum laugardaginn 16. júní kl 14:00.
Sýningin mun standa fram eftir sumri og eru allir velkomnir. Myndirnar á sýningunni eru eftir Smára Jónsson, en hann hefur stundað nám við Myndlistarskóla Mosfellsbæjar undanfarin þrjú ár og lauk þaðan fjögurra þrepa grunn námi og fyrsta áfanga í framhaldsnámi nýlega.
Smári var búin að dunda við myndlist í 18 ár áður en hann hóf námið og er nú að stíga sín fyrstu skref hans í að koma sér á framfæri, en hann hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum hingað til og er þessi sýning þriðja einkasýning hans.



