Menning
Skaftfellingur---kapa
Skaftfellingur---kapa
Skaftfellingur 2012

21.08.2012

Skaftfellingur er kominn út

Skaftfellingur

Tuttugasti og fyrsti árgangur héraðsritsins Skaftfellings er komið út. Ritið flytur að vanda fjölbreytt efni úr Austur-Skaftafellssýslu, bæði nýtt og gamalt. Má þar nefna frásagnir, viðtöl, verkefni framhaldsskólanema, smásögu eftir Kristínu Jónsdóttur, greinar presta um látna Hornfirðinga og síðast en ekki síst fjölda teikninga eftir Gísla Eystein Aðalsteinsson.

Formála skrifar Hugrún Harpa Reynisdóttir formaður ritnefndar og Runólfur Hauksson tók kápumyndina. Útgefandi Skaftfellings er Menningarmiðstöð Hornafjarðar, en ritnefnd skipa Bryndís Björk Hólmarsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Kristín Gísladóttir og Sigurður Örn Hannesson sem jafnframt er ritstjóri.

Heiðar Sigurðsson annaðist umbrot og prentsmiðjan Oddi sá um prentun Skaftfelling er hægt að fá bæði í áskrift og lausasölu hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Nýheimum, 780 Höfn, sími: 470 8050, netfang: menningarmidstod@hornafjordur.is

Senda grein

Menning

Skaftfellingur er kominn út

Skaftfellingur

21.8.2012 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica