Fyrsti veggur vetrarins
Vegginn prýðir mynd eftir Skarphéðin Þorkelsson
Vegginn prýðir að þessu sinni olíumálverk af Höfn eftir Skarphéðin Þorkelsson sem var héraðslæknir á Höfn 1943-1950, en það ár lest hann skyndilega aðeins 38 ára gamall.
Myndina fékk Listasafn Hornafjarðar að gjöf frá Ástríði Pálsdóttur í Reykjavík, en hún erfði hana eftir foreldra sína Pál Sigurðsson og Ragnhildi Geirsdóttur sem fengu hana í brúðargjöf. Þetta fólk var á engan hátt tengt Hornafirði en Páll var sjálfur frístundamálari og gæti hafa þekkt Skarphéðinn og myndin því e.t.v. frá honum sjálfum.
Ekki er kunnugt um að mörg málverk séu til eftir Skarphéðin en hann teiknaði mikið að sögn Birnu dóttur hans. Einnig samdi hann lög og texta og hefur verið gefið út nótnahefti með karlakórslögum hans.
Myndin verður til sýnis á Bókasafninu til 21. september.


