Menning
Svavar Guðason
Svavar Guðason
Frá Hornafirði, 1928 -30 olía á striga

24.08.2012

Verk Svavars Guðasonar á sýningu í Cobra safninu í Amstelveen í Hollandi

Verk Svavars Guðasonar listmálara til Hollands

Í október opnar sýning á verkum Svavars Guðnasonar í Cobra safninu í Amstelveen í Hollandi. Sýningin er samvinnuverkefni Listasafns Íslands, Carl-Henning Pedersen og Else Alfelts safnsins, Skovhuset safnsins (bæði í Danmörku) og Cobra safnsins. Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Listasafn lánar fjögur verk á sýninguna og verða verkin send til LÍ sem síðan kemur þeim áfram til sýnnigaraðila.

Það er ánægjulegt fyrir starfsemi safnsins að vera þátttakandi í jafn metnaðarfullu verkefni og þessi sýning er en verkin eiga eftir að vera til sýnis bæði í Hollandi og Danmörku. Gert er ráð fyrir að málverkin skili sér aftur til Hornafjarðar eftir eitt ár. Lán á listaverkum er hluti þeirrar starfsemi sem fellur undir listasöfn og höfum við hornfirðingar notið góðs af því t.d. með láni verka frá Listasafni Íslands. Gerðar eru miklar kröfur til lántakans um aðstöðu, varðveislu og gæslu verkanna en Cobra safnið sérhæfir sig í list félaga í Cobra-hreyfingunni.

Titill sýningarinnar er Svavar Gudnason Painter of the Icelandic Landscape eða Svavar Guðnason málari íslensks landslags og litanotkun hans, ástríða og form tengd íslenskri náttúru. Verkin sem koma frá Hornafirði eru æskuverk, þrjár landslagsmyndir og málverk sem kallað er Kona við glugga. Þeir sem hafa áhuga á að afla sér frekari upplýsinga um söfnin geta heimsótt vefslóðirnar sem fylgja hér að neðan.

www.cobra-museum.nl/en/exhibitions.html#SvavarGudnasonbrPainteroftheIcelandicLandscape

www.chpeamuseum.herning.dk/ www.skovhus-kunst.dk

Senda grein

24.8.2012 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica