Menning
Huldusteinn
Huldusteinn
Huldusteinn - Safnahelgi
Mynd 5 af 7
1 2 3 4 5 6 7

29.10.2012

Safnahelgi á Suðurlandi helgina 2. - 4. nóvember

Dagskrá fyrir Hornafjörð á Safnahelgi á Suðurlandi

Helgina 2. - 4. nóvember verður Safnahelgi á Suðurlandi haldin hátíðleg í fimmta sinn. Safnahelgin er stærsti sameiginlegi Menningarviðburðurinn á suðurlandinu og nær hann frá Ölfusi allt til Hornafjarðar.

Boðið er upp á margvíslega viðburði á meðan á safnahelgi stendur, en söfn, setur, listamenn, handverksfólk og sýningarsvæði á Hornafirði taka þátt í þessari helgi.

Dagskráin er fjölbreytt að vanda og um að gera að nota tækifærið og taka sér rölt á milli staða og skoða hvað er í boði. Heildardagskrá helgarinnar má svo finna á www.sunnannmenning.is og hér á pdf formi.

Listasafn Hornafjarðar

Listasafn Hornafjarðar býður upp á sýningu með ljósmyndum eftir Brian Briffin. Brian er breskur ljósmyndari sem dvaldist á Hornafirði árið 2007 og tók myndir af Hornfirðingum og Hornfirsku landslagi. Hann hefur starfað sem ljósmyndari um árabil og er með fremstu portrett ljósmyndurum í Bretlandi. Föstudaginn 2. nóvember verður opið frá klukkan 9:00 – 15:00. Á laugardag og sunnudag er opið frá klukkan 13:00 til 17:00. Allir eru velkomnir

Prjónakaffi á Bókasafninu

Prjónakaffi Guðnýjar bókastýru verður á Bókasafninu frá klukkan 13:00 til 15:00 á laugardeginum. Allir eru velkomnir á prjónakaffi og það er alltaf heitt á könnunni. Um að gera fyrir alla sem eru með eitthvað á prjónunum að kíkja við og prjóna í góðum félagskap.

Sýningin Fuglalíf á Bókasafninu

Náttúrugripasýning opnaði á Bókasafninu 29. október og ber hún heitið Fuglar. Opið verður á laugardeginum frá klukkan 13:00 til 16:00. Á sýningunni er aðal áherslan lögð á fuglalíf og gefur að líta fugla og egg viðkomandi fugla sem verpa á svæðinu. Allir velkomnir.

Leyndardómar hafsins í Listasafni

Í fremra rými Listasafnsins er boðið upp á sýninguna Leyndardómar hafsins en þar gefur að lýta dýralíf sem tengist hafinu á einn eða annan hátt, ásamt skeljum. listasafnið verður opið alla helgina frá klukkan 13:00 til 17:00. Allir eru velkomnir.

Huldusteinn Steinasafn

Huldusteinn Steinasafn verður með opið hús laugardaginn 3. nóvember frá klukkan 14:00 til 18:00. Allir velkomnir á safnið.

Vinnustofa Eyrúnar Axelsdóttur í Miklagarði

Vinnustofa Eyrúnar Axelsdóttur í Miklagarði verður opin laugardag og sunnudag frá klukkan 14:00 til 17:00. Ýmislegt skemmtilegt að sjá og allir velkomnir.

Litli Listaskálinn á Sléttu

Litli Listaskálinn á Sléttu verður opin laugardag og sunnudag frá klukkan 14:00 til 17:00. Til sýnis og sölu verða handunnin kerti frá Gingó. Allir velkomnir.

Handraðinn – handverkshús

Handraðinn félag lista og handverksfólks á Hornafirði verður með opið laugardag og sunnudag frá klukkan 13:00 til 17:00. Sjón er sögu ríkari og kjörið tækifæri til að versla sér lopavettlinga fyrir veturinn. Allir velkomnir.

Þórbergssetur

Ljósmyndasýningin Óþrotlegur auður, textar Þórbergs og ljósmyndir Þorvarðar Árnasonar og Tony Prower. Sýning með styttum sem Lilla Hegga gaf Sobbeggi afa, stytturnar eru gjöf frá Helgu Jónu Ásbjarnardóttur. Sýning á frumútgáfum á verkum Þórbergs Þórðarsonar, frumútgáfurnar eru gjöf frá Skinney – Þinganes. Kaffi á könnunni og opið laugardag og sunnudag frá kl 13:00 til 16:00.

www.facebook.com/Menningarmiðstöð Hornafjarðar

www.rikivatnajokuls.is/menning

Senda grein

Menning

Safnahelgi á Suðurlandi helgina 2. - 4. nóvember

Dagskrá fyrir Hornafjörð á Safnahelgi á Suðurlandi

29.10.2012 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica