Menning
Jólamarkaður
Jólamarkaður
Mynd 1 af 3
1 2 3

14.11.2012

Söluhjallar og jólastemning framundan

Undanfarin ár hafa Hornfirðingar safnast saman fyrsta laugardag á aðventunni, slegið upp markaði og notið jólastemningar.

Jólamarkaðurinn er orðinn ómissandi hluti jólaundirbúningsins og skemmtilegt krydd í tilveruna.

Jólamarkaðurinn verður með breyttu sniði í ár. Síðustu ár hefur markaðurinn verið í Nýheimum og Miðbæ en í ár verður markaðinn haldinn í söluhjöllum á torginu milli Ráðhússins og Nýheima. Markaðurinn verður opinn laugardagana 1., 8., 15., og 22. desember klukkan 13-16.

Þeir sem vilja fá aðstöðu á markaðnum eru beðnir um að senda upplýsingar um þá daga sem sótt er um, upplýsingar um söluvarning, nafn og kennitölu á netfangið jolamarkadur@hornafjordur.is. Gert er ráð fyrir að hver og einn sjái um að skreyta umhverfi sitt í söluhjöllunum. Þá eru hönnuðir, veitingastaðir og verslanir hvött til að vera með og dreifa þannig jólamarkaði útum alla Höfn.

Leiga fyrir söluaðstöðu í hjöllunum er 1.500 kr p dag. Gert verður kort með upplýsingum um þá aðila sem hafa opið þessa laugardaga og taka þannig þátt í að dreifa jólamarkaði um Höfn. Þátttaka er ókeypis og veitingahús og verslurnareigendur hvött til að vera með og gera fjölbreytta og góða þjónustu enn sýnilegri.

Tilkynna þarf um þátttöku og umsókn um aðstöðu í söluhjöllum fyrir 22. nóvember á jolamarkadur@hornafjordur.is.

Senda grein

Menning

Söluhjallar og jólastemning framundan

14.11.2012 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica