Veggurinn minn í desember
Dagvist fatlaðra á vegginn minn
Dagvist fatlaðra á vegginn á Bókasafninu í desember mánuði.
Meðlimir dagvistar fóru á myndlistarnámskeið hjá Gingó á dögunum og afrakstur námskeiðsins má nú sjá hanga á veggnum mínum.
Aníta Sóley á tvær myndir ásamt Ágeiri Sigurðssyni og Kolbrún Benediktsdóttir á eina mynd.
Verkin eru olíumálverk og eru af fólki og svo er ein landslagsmynd af Staðarfjalli í Suðursveit.



