USÚ í öðru sæti í ungkarlaflokki
Bjarni Malmquist
Þá er Meistaramóti Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum lokið og þó ég segi sjálfur frá þá stóð ,,lið" USÚ sig með bara nokkuð vel. Fyrsta greinin hjá mér var langstökk þar sem ég byrjaði á að stökkva 6,06 og bætti mig svo í hverju stökki og endaði á því að stökkva 6,53 sem er nálægt mínu besta og var ég Íslandsmeistari í þeirri grein, næstu tveir á eftir mér stukku 6,06 og 6,04 þannig að það var nokkuð öruggt, næsta grein var svo 60m hlaup þar sem ég bætti mig nokkuð eða ú 7,47 í 7,32 sek, en engu að síður endaði ég jafn öðrum í 4-5 sæti, síðasta greinin á fyrri deginum var 800m hlaup og skellti ég mér í það, hljóp á tímanum 2.10,54, bætti mig um 1,5 sek frá utanhústíma og fékk silfur í laun fyrir. Eftir fyrri daginn var USÚ í 2. sæti í stigum í flokki 19-22 ára ungkarla, næst á eftir Íslandsmeisturum FH, þá fór maður nú að reikna það hvort að einhver tölfræðilegur möguleiki væri á að vinna FHingana og miðað við þá útreikninga átti það nánast ekki að vera hægt nema þá með einhverjum öfgakenndum árangri, en eins og máltækið segir, ,,allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi" svo að maður ákvað að láta reyna á það og taka bara alla þá orku sem maður hefði, því að það yrði sko sannarlega saga til að segja frá ef að ,,lið" USÚ myndi vinna Íslandsmeistarana.
Seinni dagurinn hófst á þrístökki þar sem ég ætlaði mér ekkert annað en sigur, en svo maður geri langa sögu styttri þá endaði það með því að ég stökk 12,80 sem er minn besti árangur í þrístökki þó svo að ég viti að ég eigi að geta mun betur og svo í síðasta stökkinu stökk Jón Björn Vilhjálmsson sem var í öðru sæti fyrir stökkið 12,81 og tók mig þar með 1cm og endaði ég þá í 2. sæti svo að ekki byrjaði dagurinn vel, en eigi dugir að gráta Björn bónda heldur halda bara ákveðið fram með það í huga að gera betur en sitt besta. 60m grindahlaup var næsta grein á eftir þrístökkinu, þetta var í fyrsta skipti sem ég keppti í 60m grind svo að ég stefndi bara á það að hlaupa á undir 10 sek sem ég taldi ágætis árangur bara, til keppni var mættur einn af bestu grindahlaupurum landsins Fannar Gíslason sem var m.a. 5. á vígslumóti Laugardalshallarinnar helgina áður og voru þar að keppa einungis þeir bestu á landinu. En hlaupið endaði þannig að Fannar kom fyrstur í mark á 9,07 sek og ég næstur á eftir honum á 9,35 sek sem ég er bara mjög sáttur við, og er mér sagt að það sé bara nokkuð góður árangur í þessari grein. Eftir grindina var svo hástökkið og stökk ég þar yfir 1,65m og var mjög tæpur á því að fara yfir 1,70m en það hafðist samt ekki, endaði engu að síður með bronsið. Svo kom það svakalegasta sem gerst hefur hjá mér síðan að ég byrjaði að stunda íþróttir held ég, það var 400m hlaup sem var næst og var ég þar að fara að keppa við menn sem allri áttu tíma í kringlu um 52-53 sek sem er 2-3 sek betri tími en ég átti fyrir hlaupið, ég taldi mig nú samt vita það að allt gæti gerst í þessu hlaupi og að ég gæti jafnvel hlaupið á álíka tíma og þeir áttu. Ég spurði æfingafélaga minn Svein Elías Íslandsmethafa í 400m hlaupi að því fyrir hlaupið hvernig maður ætti að hlaupa 400m hlaup, hann sagði mér bara einfaldlega að hlaupa hratt fyrri hringinn og ég yrði að verða fyrstur út úr seinni beygjunni þar og halda svo bara út sama hraða í seinni hringnum þetta hljómaði nú mjög einfalt, og ákvað ég bara að vinna þetta hlaup og ekkert annað, það gekk allt upp, ég var fyrstur eftir fyrri hringinn eftir mikla baráttum um að vera fyrstur út úr beygjunni og seinni hringurinn var ekki verri, og þá var kátt í höllinni því að ég hafði varla trúað því alveg að ég gæti þetta, og hvað þá þegar ég sá tímann, var rúmlega 1sek á undan næsta og kom í mark á tímanum 51,54 sek. Fyrir hlaupið átti ég best rétt tæpar 55 sek eða 54,96, og á innan og utanhústímum er sagt að muni að jafnaði um 1 sek hvað tíminn sé lakari inni heldur en úti og miðað við það var þetta bæting um 4,5 sek, mér fannst það mjög gott sem einn keppandinn sagði, ,,þetta er ekki bæting, þetta er leiðrétting? ég held ég sé nú bara nokkuð sammála því. Þess má einnig geta að USÚ metið í 400m hlaupi utanhúss er 52,03 sem Þorvaldur B. Hauksson setti 1992, og miðað við innan og utanhúss tíma var hlaupið hjá mér ca. 1,5 sek betri tími en metið, og annað til að sýna hvað þetta var ótrúlegt hlaup er það að millitíminn á fyrri 200m var 24 sek og er það jafnt mínum besta árangri í 200m hlaupi. Eftir þetta frábæra 400m hlaup var maður alveg búinn að gleyma hrakförunum í þrístökkinu fyrr um daginn, en ég var ekki alveg hættur heldur skellti ég mér í mitt fyrsta 1500m hlaup eftir þetta allt saman og kom ég þar í mark á tímanum 4.51,82 og uppskar silfur. Þá var mótið senn á enda, nema boðhlaup og verðlaunaafhendingar, mikil spenna var þegar verið var að tilkinna úrslitin og í flokkum 15-16 ára og 17-18 ára bæði í karla og kvennaflokkum urðu ÍR Íslandsmeistarar félagsliða, og í flokki 19-22 ára ungkvenna var það Breiðablik sem urðu meistarar, og svo í ungkarlaflokki 19-22 ára voru úrslitin eftirfarandi, í þriðja sæti var FH með 32 stig, þar næst kom Breiðablik með 33 stig og Íslandsmeistarar félagsliða í flokki 19-22 ára var USÚ með 38,5 stig!!! Og voru mikil fagnaðarlæti við þá tilkynningu meðal allra að heyra þetta og fannst öllum það alveg frábært hjá mér að taka ,,FHingana?, og óskuðu hin liðin mér mikið til hamingju með það, Ég held að USÚ hafi alveg örugglega aldrei orðið Íslandsmeistari félagsliða og var ég nú ekkert farinn að trúa því strax, og var reyndar nánast viss um að eitthvað hefði klikkað í stigatalningunni því að þetta átti bara engan veginn að vera mögulegt. Það kom líka svo í ljós daginn eftir að stigin höfðu verið vitlaust talin og voru þá rétt úrslit að lið FH vann með 44 stig en USÚ var í 2. sæti með 38,5 stig þó ekki nema 5,5 stigum á eftir sem að hefði getað orðið að 4 stigum hefði maður hlaupið 1/100 úr sek hraðar í 60m hlaupinu og stokkið 1cm lengra í þrístökkinu, en engu að síður ágætis árangur að vera í 2. sæti fyrir ofan Breiðablik og fleiri stór lið, sérstaklega í ljósi þess að t.a.m. voru 10 keppendur að keppa fyrir FH og 7 fyrir Breiðablik. Í heildarstigakeppninni var USÚ svo í 9. sæti af 18 liðum sem tóku þátt og voru meðal annars lið Ármanns, UMSS og Aftureldingar fyrir neðan USÚ í heildarstigakeppninni og lið Umf. Selfoss og HSK innan við 10 stigum ofar en USÚ. Svo að uppskeran á þessu móti var 1 brons, 4 silfur, og 2 gull, auk USÚ meta í öllum greinum nema langstökki og hástökki (innanhúsmet). Næsta mót er svo strax um næstu helgi og er það Meistaramót Íslands í fjölþrautum og keppi ég þar í fyrsta skipti í sjöþraut og stefnan er að ná fleiri stigum heldur en USÚ metið í tugþraut er eða 3704 stigum, reyndar stefni ég nú helst á 4000 stig.
Ég vona að úr því að USÚ er nú farið að vera í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn (í 19-22 ára ungkarla flokki) að frjálsar íþróttir komist á aðeins hærri stall og fái aðeins meira notið sín á Höfn og að aðstaðan sem koma á fyrir Unglingalandsmótið verði fyrirmyndaraðstaða og ekkert verði til sparað fyrir frjálsíþróttaaðstöðuna því að ekki hefur nú verið mikið lagt upp úr þeirri aðstöðu í gegn um árin og tel ég að það sé alveg tími til kominn að bæta úr því. Ég var einmitt að heyra þau gleðitíðindi að verið væri að teikna nýja frjálsíþróttavöllinn sem á að koma fyrir Unglingalandsmótið 2007 og verður gaman að sjá þegar hann kemur og vona ég bara að hann komi sem fyrst.
Ég vil líka nýta tækifærið til að þakka Sveitarfélaginu fyrir peningastyrkinn sem þeir veittu mér og kemur hann sér vel til að borga upp í æfingabúðir sem ég fer í um páskana til Spánar.
Kær kveðja til ykkar allra Bjarni Malmquist




Skrifa athugasemd