Pistlar og pólitík
Árni Rúnar Þorvaldsson og fjölskylda
Árni Rúnar Þorvaldsson og fjölskylda
Árni Rúnar Þorvaldsson ásamt eiginkonu sinni Ragnhildi Einarsdóttur. Börnin heita Guðný og Einar Karl. (Mynd Galdur)

03.11.2006 Pistlar og pólitík

Lokaspretturinn hafinn

Þá er farið að síga á seinni hlutann í baráttunni um sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Prófkjörið fer fram á morgun frá kl. 09:00 - 18:00 í húsi Vökuls við Víkurbraut, frá kl. 10:00 - 12:00 í Hofgarði og frá kl. 13:00 - 15:00 í Hrollaugsstöðum. Einnig verður að hægt að kjósa utankjörfundar í dag frá kl. 18:00 - 20:00 í húsi Vökuls við Víkurbraut. Prófkjörið er opið öllum kosningabærum einstaklingum með lögheimili í Suðurkjördæmi. Ekki eru gerðar kröfur um flokksaðild að Samfylkingunni og engar kröfur eru gerðar um stuðningsyfirlýsingu. Eina sem þarf að gera er að mæta, kjósa og hafa þar með áhrif á gang mála. Það eina sem gildir er kjörskráin.

Nýtum tækifærið og höfum áhrif
Nú þegar öllum kjósendum í Suðurkjördæmi gefst kostur á því að hafa áhrif á gang mála með beinum hætti á uppröðun á framboðslista er mikilvægt að þeir nýti sér þetta tækifæri. Það gera kjósendur með því að mæta á kjörstað og raða fimm frambjóðendum í þá röð sem þeir vilja sjá á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Sautján mjög frambærilegir einstaklingar gefa kost á sér í prófkjörinu þannig að það er af nógu að taka. Nýtum þetta tækifæri sem okkur er gefið til þess að hafa raunveruleg áhrif á gang mála hjá stærsta stjórnmálaafli kjördæmisins. Látum tækifærið ekki renna okkur úr greipum.

Styðjum okkar mann
Með viku millibili fara fram tvö prófkjör í Suðurkjördæmi hjá tveimur stærstu stjórnmálaflokkum landsins. Einungis einn frambjóðandi frá Sveitarfélaginu Hornafirði er að berjast fyrir okkar hagsmunum í prófkjöri Samfylkingarinnar en enginn hefur ákveðið að taka slaginn í prófkjöri sjálfstæðismanna. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt þegar þessi staða er uppi að við Hornfirðingar sameinumst um þann frambjóðanda sem í boði er. Það er nauðsynlegt fyrir þetta einangraða svæði á landvísu að eiga málsvara í sölum alþingis sem þekkir þarfir svæðisins og vilja íbúanna. Það hefur margsannað sig að enginn berst fyrir okkar hagsmunum nema við sjálf. Við getum ekki ætlast til að aðrir hjálpi okkur ef við erum ekki tilbúin að hjálpa okkur sjálf. Þess vegna er ég tilbúinn að bjóða fram krafta mína í prófkjöri Samfylkingarinnar og sækist eftir stuðningi í 3. - 4. sætið.

Árni Rúnar Þorvaldsson
Forseti bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica