Verja þarf eðlilega þjónustu og nýta sóknarfærin
Standa þarf dyggan vörð um hagsmuni landsbyggðarinnar á öllum sviðum. Nauðsynlega þjónustu þarf að tryggja og gæta þess að ekki verði slegið af í kröfum um grunnþjónustu. Það er algjörlega óásættanlegt ef ekki er haldið úti eðlilegri læknis- og heilbrigðisþjónustu, löggæslu og annarri þeirri þjónustu sem nauðsynleg er til að halda stöðum í eðlilegri byggð. Slík grunnþjónusta er lykill þess að hægt sé að byggja upp og horfa fram á veginn með sókn í huga. Efla á háskólanám og rannsóknir samhliða því að verja það sem til staðar er þarf að sækja fram á veginn. Blása til sóknar þar sem möguleikar gefast og nýta hvert tækifæri sem gefst til uppbyggingar og eflingar byggðar.
Menntun þarf að tryggja og vinna fast og ákveðið að því að efla háskólanám sem víðast á landsbyggðinni. Nýta þau tækifæri sem eru á hverju svæði til eflingar og uppbyggingar rannsókna og fræða. Rannsóknastofnanir á að staðsetja þar sem rannsóknarefnið er og er nágrenni Vatnajökuls því tilvalið svæði sem miðstöð jöklarannsókna á heimsvísu.
Burt með einbreiðar brýr
Samgöngur eru og verða eitt af lykilatriðum í uppbyggingu og sókn. Stytting leiða og aukið öryggi eiga að vera leiðarljósið í gerð samgöngumannvirkja. Mörg verkefni á sviði samgöngumála bíða úrlasunar í Suðurkjördæmi. Einbreiðar brýr í röðum á þjóðvegi eitt uppfylla á engann hátt þær kröfur sem gera þarf til þjóðvega í dag. Í austurhluta kjördæmisins er mikið verk að vinna á þjóðvegi eitt í þeim efnum og sem fyrst þarf að ráðast í að útrýma þeim slysagildrum sem felast í einbreiðu brúnum.
Ný brú og jarðgöng
Kominn er tími á gerð nýs vegstæðis og byggingu brúar yfir Hornafjarðarfljót. Vinna þarf fast að lausn í þeim efnum og að horfa til hagkvæmni og styttingar leiða. Stytta þarf leiðir frá Hornafirði til miðausturlands og auka um leið öryggi vegfarenda. Með gerð ganga undir Lónsheiði næðist mikill áfangi bæði hvað varðaði öryggi og styttingu leiða og í framhaldi af þeirri framkvæmd er rétt að horfa til vegagerðar um Öxi.
Traustar flugsamgöngur
Flugsamgöngur til landsbyggðarsvæða þurfa að vera öruggar og traustar og gera þarf þá kröfu að í ríkisstyrktu flugi milli höfuðborgarinnar og landsbyggðar sé notast við öflugar flugvélar. Einnig þarf að tryggja að verðlag á flugleiðum sé með þeim hætti að flugið sé raunverulegur valkostur fyrir þá er ferðast.
Byggja þarf upp flugvöllinn á Höfn og nýta hann til sóknar í ferðaþjónustu. Með uppbyggingu flugvallarins á þann hátt að mögulegt verði fyrir minni þotur að lenda á honum má sækja fram á nýjum sviðum. Markaðssetja náttúruparadísina í nágrenni Vatnajökuls á nýjan hátt og sækja fram á sviði ferðaþjónustu. Með öflugum flugvelli skapast tækifæri til markaðssetningar og sóknar. Sóknar sem nauðsynleg er allsstaðar á landsbyggðinni.
Verkefnin bíða í vörn og sókn
Það eru næg verkefni sem bíða, bæði í sókn og vörn. Heimamenn vita hvar skórinn kreppir að. Hvar þarf að spyrna við og hvar þarf að spýta í. Mig langar að fá að taka þátt í þeirri baráttu með heimamönnum. Baráttu fyrir bættum hag og nýjum tækifærum til framtíðar.
Grímur Gíslason




Skrifa athugasemd