Ályktun kjördæmiráðs Vinstrihreyfingarinnar Græns framboð
Kjördæmisráð Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs haldið á Selfossi laugardaginn 2.12.2006 samþykkir einróma eftirfarandi ályktun. Kjördæmiráð Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs haldið á Selfossi laugardaginn 2.12.2006 varar við áformum um virkjanir í Þjórsá í byggðum Suðurlands. Sátt er um núverandi landnýtingu en ljóst að fyrirhugaðar virkjanir munu valda djúpstæðum ágreiningi og sásauka. Auk þess munu þær umbreyta landslagi, náttúru og mannvist við Þjórsá allt frá Þjórsárdal til sjávar, um alla framtíð.
Á Suðurlandi er blómlegur landbúnaður ein af meginstoðum atvinnu og mannlífs. Þau uppistöðulón sem fylgja virkjununum færðu á kaf og eyðileggðu hluta af jörðum bænda við Þjórsá, bæði ræktuðu landi og úthaga. Hin forna leið inn í Þjórsárdal færi á kaf. Á löngum köflum yrði farvegur Þjósár nánast þurr, fossar hyrfu og áin virkaði ekki lengur sem girðing milli sýslna og sauðfjárveikihólfa né sem sandgildra. Suðurland yrði ekki samt.
Á fundi sínum samþykkti kjördæmisráð VG í Suðurkjördæmi framboðslista til Alþingis. Listinn er sem hér segir.
1. Atli Gíslason. Lögmaður. Reykjavík
2. Alma Lísa Jóhannsdóttir. Deildarstjóri í búsetuþjónustu. Selfoss
3. Ragnheiður Eiríksdóttir. Tónlistar- og útvarpsm. Reykjanesbær.
4. Sigþrúður Jónsdóttir. Náttúrufræðingur. Gnúpverjahreppur.
5. Hólmar Tryggvason. Trésmiður. Reykjanesbær.
6. Jórunn Einarsdóttir. Grunnskólakennari. Vestmannaeyjar.
7. Kristín G. Gestsdóttir.Grunnskólakennari. Hornafjörður.
8. Arndís Soffía Sigurðardóttir. Ferðaþjónustubóndi. Hvolsvöllur.
9. Kári Kristjánsson. Landvörður Lakagígum. Kirkjubæjarklaustur.
10. Guðrún Olga Clausen. Kennari. Hveragerði.
11. Pétur Halldórsson. Héraðsráðunautur. Hvolsvöllur.
12. Marta Guðrún Jóhannesdóttir. Bókmenntafræðingur. Garður.
13. Sigurlaug Gröndal. Skrifstofustýra. Þorlákshöfn.
14. Aldís Gunnarsdóttir. Ferðamálafræðingur. Vestmannaeyjar.
15. Agnar Sigurbjörnsson. Verkamaður. Reykjanesbær.
16. Jón H. Ragnarsson. Bóndi. Bláskógabyggð.
17. Hildur Hákonardóttir. Vefari. Ölfus.
18. Sævar Kristinn Jónsson. Bóndi. Hornafjörður.
19. Guðrún Jónsdóttir. Lífeyrislaunakona. Selfoss.
20. Karl Sigurbergsson. Eldri borgari. Reykjanesbær.
Kjördæmisráð Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs á Suðurlandi.




Skrifa athugasemd