Göng undir Lónsheiði - samgönguátak Samfylkingarinnar
Eftir Björgvin G. Sigurðsson, þingmann og oddvita Samfylkingarinnar.
Heiði getur verið öræfi en Lónsheiði er ekki Lónsöræfi. Þetta vita auðvitað allir en samt sem áður er hægt að falla í þann pytt í hita og þunga dagsins að hugsa eitt og skrifa annað. Það gerði ég í héraðsfréttablaðinu Eystra Horni fimmtudaginn 26. apríl síðastliðinn. Auðvitað er morgunljóst að göng eru á dagskrá í gegnum Lónsheiði en ekki undir öræfi kennd við Lón. Þeim sem kunna að hafa misst úr einhvern svefn vegna þessarar mannlegu eða tæknilegu misritunar eru beðnir velvirðingar. Rétt skal að sjálfsögðu vera rétt. Eitt mikilvægasta verkefni næstu ára er að rjúfa kyrrstöðuna í samgöngumálum. Sextán ára vanræksla í samgöngumálum hefur sett mark sitt á Suðurkjördæmi. Því mun ljúka í vor komist Samfylkingin til áhrifa. Nú segjast stjórnarflokkarnir geta gert allt fyrir alla. Klukkutíma fyrir kosningar. Það er ekki mjög trúverðugt eftir sextán ára sögu niðurskurðar og vanrækslu.
Tvöföldun Suðurlandsvegar og ný brú yfir Hornafjarðafljót blasa við sem stóru verkefnin. Samfylkingin hefur allt síðasta kjörtímabil barist af hörku fyrir þeim framkvæmdum. Við fluttum t.d. um það þingsályktun sem stjórnarliðar neituðu að flytja með okkur. Nú fallast þeir á tvöföldun vegarins. Í orði allavega og fagna ég því. Það þarf að tryggja að það fari ekki eins fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar einsog Suðurstrandavegi sem var lofað sem sérstakri framkvæmd vegna kjördæmabreytinga fyrir áratug. Síðan er hann sleginn af eftir hverjar kosningar.
Önnur stór og brýn verkefni eru ný brú yfir Hornafjarðafljót, brúin yfir Hvítá, átak í uppbyggingu safnveganna í sveitunum, sem eru til skammar. Þá vegi verður að laga. Eins er mikilvægt að koma Gjábakkavegi í framkvæmd.
Við ætlum að nota slakann sem myndast í efnahagslífinu við frestun ákvarðana um nýja stóriðju til að ráðast í samgönguátak, stórefla umferðaröryggi og stækka atvinnusvæði svo um munar. T.d. að tengja Suðurnes og Suðurland með Suðurstrandavegi. Eins þarf að vera samræmi á milli tekna af umferðinni og fjárfestinga í nýframkvæmdum. Því fer fjarri að svo sé nú.
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar.




Skrifa athugasemd