Pistlar og pólitík
Árni M. Mathiesen
Árni M. Mathiesen
Árni M. Mathiesen

09.05.2007 Pistlar og pólitík

Tökum enga áhættu um framtíðina

Aðeins nokkrir dagar eru nú í kosningar. Sumir hafa sagt þessar kosningar vera þær mikilvægustu í áratugi. Að mörgu leyti má segja að það sé rétt. Þeim góða árangri sem náðst hefur á síðustu árum má auðveldlega glopra niður á skömmum tíma ef röngum aðferðum er beitt í efnahagsstjórninni. Góð staða þjóðmála: Í þessari kosningabaráttu sem nú er að ljúka er athyglisvert hversu fá átakamál hafa verið í umræðunni. Efnahagsmál og ríkisfjármál eru í svo góðum farvegi að vinstri menn koma sér ávallt undan því að fjalla um málefnið í stóru samhengi heldur vilja reyna að draga einstaka þætti út úr og ræða þá án samhengis við tekjur og útgjöld ríkissjóðs. Slík rökleysa hefur ekki skilað þeim árangri. Almenningur hefur áttað sig á að umhverfismál eru Sjálfstæðismönnum, eins og öðrum flokkum, ofarlega í huga en jafnframt að skynsamleg nýting auðlinda okkar er nauðsynleg um leið og við gætum að náttúru og umhverfi. Nokkrir stjórnarandstæðingar halda áfram að reyna að telja almenningi trú um að ójöfnuður hafi vaxið þrátt fyrir að viðurkenndar rannsóknir OECD meðal evrópuþjóða hafa staðfest að ójöfnuður hér á landi hafi ekki vaxið og hann sé með því minnsta sem þekkist í evrópuríkjum. Það er því ekki óeðlilegt að átakalínur séu fáar enda árangur ríkisstjórnarinnar á síðustu árum sérlega góður.

Loforðin hafa verið efnd
Óumdeilt er að kaupmáttur alls almennings hefur vaxið mikið á síðustu árum, skattar fyrirtækja og einstaklinga hafa lækkað, eignaskattar hafa verið felldir niður, sérstakur tekjuskattur einstaklinga felldur niður, erfðafjárskattur lækkaður, matarskattur lækkaður um helming, persónuafsláttur hefur hækkað, vörugjöld og tollar hafa lækkað eða verið felldir niður og svo mætti áfram telja. Öll loforð Sjálfstæðisflokksins í skattamálum sem sett voru fram fyrir síðustu kosningar hafa verið efnd og meira til. Á næsta kjörtímabili verður unnt að halda áfram að bæta kjör almennings, lækka skatta og hækka skattleysismörk ef efnahagsstjórn verður traust og örugg og áfram verður haldið á þeirri braut sem fetuð hefur verið á síðustu árum.

Ef við viljum Geir þá þarf að kjósa Sjálfstæðisflokkinn
Í skoðanakönnunum síðustu daga hefur komið í ljós að Geir H. Haarde hefur einstakan stuðning meðal þjóðarinnar. Enginn annar leiðtogi stjórnmálanna kemst nálægt þeim stuðningi og vinsældum sem Geir nýtur. Á sama hátt hafa skoðanakannanir sýnt að flestir Íslendingar vilja að Sjálfstæðisflokkurinn verði áfram í næstu ríkisstjórn og ber Sjálfstæðisflokkurinn höfuð og herðar yfir aðra flokka hvað þetta snertir. Mjög mikilvægt er þó að minna á að til þess að tryggja Sjálfstæðisflokknum aðild að næstu ríkisstjórn og halda Geir áfram í forsætisráðuneytinu þurfa kjósendur að setja X við D á laugardag.
Engin önnur leið er fær til þess að ná þeirri niðurstöðu.

Ég skora á kjósendur að tryggja Sjálfstæðisflokknum góða kosningu.

Árni M. Mathiesen
Höfundur er fjármálaráðherra

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica