Pistlar og pólitík
Austurfjörur yfir vetrartímann

16.02.2009 Pistlar og pólitík

Netprófkjör Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Nú þegar styttist í alþingiskosningar er undirbúningur framboðanna að komast á fullt skrið. Samfylkingin í Suðurkjördæmi hélt aukakjördæmisþing sunndaginn 15. febrúar á Hótel Örk í Hveragerði. Fulltrúar Samfylkingarinnar á Hornafirði mættu á kjördæmisþingið, þar sem ákveðið var að velja í 5 efstu sætin á framboðslista flokksins í komandi alþingiskosningum með netprófkjöri þann 7. mars.  Rétt til þátttöku í netprófkjörinu hafa allir félagar í Samfylkingunni í Suðurkjördæmi auk þeirra kjósenda Suðurkjördæmis sem sækja sér aðgangslykil að prófkjörinu.


Jafnræði kynjanna tryggt í efstu sæti framboðslistans

Fyrirkomulag prófkjörsins verður með þeim hætti að kjósendur velja 5 nöfn á kjörseðlinum og númera frá 1–5. Þegar talning atkvæða liggur fyrir skal tryggja jafnt kynjahlutfall í 1. og 2. sæti. Næst skal hugað að jafnréttisreglu Samfylkingarinnar um að hvort kyn skuli hafa að lágmarki 40% fulltrúa hvað varðar sæti 3-5.

Frambjóðendum er óheimilt að auglýsa í ljósvaka- , prent- og vefmiðlum. Kjördæmisráð gefur út sameiginlegt kynningarrit og gengst fyrir sameiginlegum fundum til kynningar á frambjóðendum. Framboðsfrestur rennur út mánudaginn 23. febrúar. Nánari upplýsingar um netprófkjörið er hægt nálgast hjá Eysteini Eyjólfssyni formanni stjórnar kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í síma 698-1404 eða með því að senda tölvupóst á netfangið xssudur@gmail.com.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica