Pistlar og pólitík
Anna Margrét Guðjónsdóttir
Anna Margrét Guðjónsdóttir

04.03.2009 Pistlar og pólitík

Anna Margrét, öflug baráttukona í 1. – 3. sæti

framboð í 1.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinna suðurkjördæmi

 

Suðurkjördæmi er afar víðfemt og miklar andstæður og fjölbreytni á öllum sviðum. Fulltrúar okkar á Alþingi verða að geta verið fulltrúar alls kjördæmisins og við höfum að minnsta kosti einn frambjóðanda í prófkjöri Samfylkingarinnar um næstu helgi, sem uppfyllir það skilyrði. Það er Anna Margrét Guðjónsdóttir. Hún byggir framboð sitt ekki á neinu sérstöku „baklandi“ eins og margir aðrir og því ekki líklegt til að draga taum eins svæðis umfram önnur. Hún hefur þess utan ákveðið erindi að sinna umfram það að vinna að málum okkar kjördæmis og það er að berjast fyrir að kostir Íslands gagnvart Evrópusambandinu verði kannaðir með aðildarviðræðum. Anna Margrét er talsmaður alþjóðahyggju og samstarfs og hafnar einangrunarstefnu. Þannig manneskju verðum við að fá á Alþingi. Það skiptir raunverulegu máli að fá fólk með svo breiðan bakgrunn og Anna Margrét hefur, bæði úr alþjóðlegu starfi og á sviði sveitarstjórna hér á landi. Hún vill nota þekkingu sína á innviðum Evrópusambandsins til að tala fyrir þeim margþættu tækifærum sem íslenskum sveitarfélögum bjóðast á vettvangi þess. Í þeim efnum eru leiðir til aukinnar þjónustu og eflingar atvinnulífs í dreifðari byggðum landsins fjölmargar og geta þær skipt miklu máli fyrir íslenskan efnahag og um leið afkomu heimilanna í landinu. Hún gjörþekkir rekstur sveitarfélaga og vandamálin, sem blasa við landsbyggðinni og ætlar sér að vera talsmaður kjördæmisins og landsbyggðarinnar á Alþingi.

Anna Margrét starfar núna sem forstöðumaður skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Brussel. Hún er landfræðingur að mennt og hefur meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur starfað sem kennari, verkefnastjóri og ferðamálafulltrúi hjá Reykjavíkurborg og á Vestfjörðum. Anna Margrét hefur víðtæka  þekkingu á sveitarstjórnar- og byggðamálum á Íslandi auk þekkingar og tengsla innan Evrópusambandsins vegna starfa sinna í Brussel frá því skrifstofa sveitarfélaganna var sett á laggirnar árið 2006. Hún er Sunnlendingur og Eyjamaður í báðar ættir. Kjósum Önnu Margréti í 1., 2. eða 3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar 5. til 7. mars nk.

 

Stuðningsmenn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica