Lítil er virðingin fyrir lýðræðinu
Halldóra Bergljót Jónsdóttir, bæjarfulltrúi skrifar
Í ljósi þess sem á undan er gengið og þegar auk þess er farið að blogga um orrahríð á bæjarráðsfundi af bæjarstjóra sem ekki var einu sinni viðstaddur sé ég mér ekki annað fært en að taka saman nokkra punkta.
Á bæjarráðsfundi 16. mars s.l. voru tiltölulega fá málefni á dagskrá miðað við það sem venjan er. Mætt auk mín voru Árni Rúnar Þorvaldsson fulltrúi Samfylkingar og Elín Magnúsdóttir fulltrúi Framsóknar auk starfsmannanna Stefáns Ólafssonar og Hauks Inga Einarsson.
Fundurinn gekk vel framanaf og var með nokkuð hefðbundnu sniði. Áhugavert var að fá Helgu Hreinsdóttur frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands og Óskar Vigni frá fyrirtækinu Bólholti inn á fundinn til að ræða nýjar leiðir við úrlausn fráveitumála. Þar er um að ræða einfaldari, ódýrari en jafnframt lausn sem sennilega virkar betur heldur en áður hefur verið talað um.
Einnig var rætt um byggingu leiguíbúða og kynnt ákveðið tilboð um byggingu og leigusamning við sveitarfélagið.
Þegar kemur að umræðu um þjónustusamning vegna heilbrigðis- og öldrunarmála mætir framkvæmdastjórinn Guðrún Júlía á fundinn. Tveim vikum fyrr eða þann 2. mars hafði bæjarstjóri varpað tölum upp á skjávarpa sem hugmyndum að samningsfleti fyrir sveitarfélagið en samningurinn var ekki á dagskrá þá. Ég lét bóka eftir mér að ég gæti ekki tekið afstöðu til einstakra hluta samningsins þar sem engin gögn lægju fyrir. Ákveðið var að þau yrðu send til okkar í tölvupósti. Á fundi í síðustu viku bjó ég mig undir umræðu um samninginn en þá bar svo við að enginn taldi sig í stakk búinn til að ræða hann hvorki Árni Rúnar formaður bæjarráðs, Reynir Arnarson eða Hjalti Þór bæjarstjóri og var því ákveðið að fresta umræðu aftur til næsta fundar sem var svo haldinn síðastliðinn mánudag eins og fyrr segir. Nú var bæjarstjórinn ekki mættur en hann hefur séð um samninginn og aðrir fulltrúar meirihlutans virðast lítið sem ekkert skipta sér af. Árni Rúnar hefur máls á samningagerðinni og stiklar á einhverju um forsendur fjármögnunar. Þegar því er lokið þá óska ég eftir að fá orðið og tilgangur minn var að ræða einstök atriði í samningnum stór og smá sem ég tel skipta máli því ég taldi að ræða ætti þetta í bróðerni. Ég er vart búin að opna munninn þegar Árni grípur fram í fyrir mér og spyr hvort það sé ætlun mín að fara yfir samninginn. Ég segi svo vera því það séu nokkur atriði sem ég vilji ræða. Þá hefur hann uppi stór orð um að tíma bæjarstjórnarmanna sé betur varið til annars en fara yfir samninginn og hvort ég ætli virkilega að fara yfir hann. Ég segi aftur að það séu nokkur atriði sem ég vilji ræða því ég tel að það skipti máli. Enn og aftur grípur hann fram í fyrir mér og spyr hvort ég geti ekki nefnt þetta án þess að fletta samningnum. Ég tjái honum að ég telji að þetta taki ekki langan tíma. Það er hvað eftir annað gripið fram í fyrir mér og á greinilega ekki að gefa færi á að ræða málið þarna á fundinum. Ég segi að það fyrsta sem komi upp þegar samningsdrögin eru skoðuð er að ekki liggi fyrir skýr markmið, hvorki meginmarkmið eða undirmarkmið. Þetta mátti ræða aðeins. En þar sem bæði Árni og Elín virtust hvorugt hafa sett sig inn í málin né vera með nokkra hugmynd um ástæður samningsgerðar lögðu þau til að þessu yrði vísað til vinnslu framkvæmdaráðs HSSA. Ég reyndi áfram að koma fleiri atriðum sem ég tel að bæjarráðsmenn og bæjarstjórnamenn þurfi að ræða áður en gengið er til samninga. Ekki var gefið færi á því og stöðugt gripið frammí fyrir mér og sagt að ekki ætti að eyða dýrmætum tíma bæjarráðs í það að ræða þennan samning. Meðal annars spurði formaður bæjarráðs hvort ég teldi mig virkilega hafa faglegar forsendur til að ræða þessi mál. Ég tjáði honum að ég teldi svo vera. Eftir 40 mínútna orrahríð um hvort ræða mætti samninginn eða ekki sá ég að ég næði ekki lengra. Ég tel að þarna hafi verið brotið á rétti mínum sem kjörnum bæjarfulltrúa um málfrelsi og tillögurétt og ég velti því fyrir mér hvort þeir sem haga sér svona séu að vinna að heilindum að hag allra bæjarbúa í okkar hagsmunamálum.
Sveitarfélagið hefur nú verið án þjónustusamnings í rúm 2 ár og ýmsar ástæður eru fyrir að samningur er enn óundirritaður sem ég fer ekki nánar út í hér.
En eftir stendur að samningur sem bindur sveitarfélagið til 5 ára hefur ekki verið ræddur af þeim aðilum sem kjörnir eru til þess að bera ábyrgð á stjórn sveitarfélagsins og þótt starfsmenn sveitarfélagsins geri sitt besta til að vinna að málum sem þessum þá er það nú einu sinni þannig að betur sjá augu en auga og endanleg ábyrgð er hjá kjörnum fulltrúum. Sum af þeim atriðum sem ekki hefur verið fjallað um eru gætu kostað sveitarsjóð háar fjárhæðir á komandi árum, ef þess er ekki gætt að það standi skýrt hver beri ábyrgð á ákveðnum þáttum og hverra er að fjármagna ákveðna þjónustu sem nú er samþætt í þjónustu sveitarfélagsins.
Höfn 19. mars
Halldóra Bergljót Jónsdóttir, bæjarfulltrúi




Skrifa athugasemd