Pistlar og pólitík
Sjálfstæðismenn á Kaffi Horninu
Sjálfstæðismenn á Kaffi Horninu
Mynd 1 af 3
1 2 3

15.04.2009 Pistlar og pólitík

Rútuferð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi voru á ferðinni á Hornafirði þriðjudaginn 14.apríl s.l. Farið var á vinnustaði ásamt því að bjóða upp á súpu og brauð í hádeginu á Kaffihorninu. Þar var setið við hvert borð og frambjóðendur kynntu sig og fóru yfir helstu málefni fyrir kosningarnar 25. apríl næstkomandi. Þá var kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins á Höfn formlega opnuð. Eftir hádegið var haldið áfram í fyrirtækjaheimsóknum og nýja sundlaugin meðal annars skoðuð.  Um þrjú leytið lagði hópurinn af stað frá Höfn áleiðis til Kirkjubæjarklausturs þar sem funda átti um kvöldið. Á leiðinni var stoppað á nokkrum stöðum meðal annars í Freysnesi þar sem boðið var upp á kaffi og kleinur. Frambjóðendurnir voru ánægðir með móttökurnar á Hornafirði og góða og fjöruga fundi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica