Atvinnan okkar
Ég get ekki orða bundist þegar formaður bæjarráðs hér á Hornafirði er farinn að verja stefnu vinstri flokkanna í sjávarútvegsmálum. Hefur hann ekki lesið hana með hagsmuni sveitafélagsins í huga. Við hér á Hornafirði erum svo lánsöm að hafa yfir miklum aflaheimildum að ráða sem u.þ.b. 250 manns hafa beina atvinnu af. Þegar það verður búið að færa 10% aflaheimilda (sem verður eftir tvö ár skv. stefnu Samfylkingarinnar) héðan frá Hornafirði má reikna með að 10% þeirra sem vinna við sjávarútveg hér hafi misst vinnuna. Það gætu verið um 25 einstaklingar og reikna má með að einhver afleidd störf fylgi í kjölfarið.
Það hlýtur líka að vera stefna vinstri flokkanna að ætla að færa aflaheimildirnar frá einhverjum til annarra annars væru þeir ekki að þessu. Og það er sama hvað hver segir, það er alveg á hreinu að ekki munu þeir taka frá þeim sem minni aflaheimildir hafa til að láta þá sem miklar heimildir hafa eins og við Hornfirðingar. Formaður bæjarráðs verður að gera sér grein fyrir stöðu sinni þó svo draumurinn sé að komast á hið háa Alþingi.
Mér finnst það skilda mín sem formanni atvinnumálanefndar hér á Hornafirði að benda vinstriflokkunum á að við erum með takmarkaða auðlind og störfum hér fjölgar ekki þegar heimildirnar fari annað. Vissulega gætu þessi 25 störf sem héðan fara orðið til á Grandagarðinum eða annarstaðar sem þörf er á en það fjölgar ekki störfum í landinu. Ég hvet Hornfirðinga til að lesa stefnu vinstri flokkanna og spyrja sig hvort þetta sé það sem landsbyggðin þarf. Hvernig eigum við að geta rekið fyrirtæki hér við þær aðstæður sem vinstri flokkarnir ætla að skapa. Til dæmis er það stefna Samfylkingarnar að allur fiskur fari á markað. Sérð þú það fyrir þér lesandi góður hvernig er að vera með marga menn í vinnu og hafa ekki hugmynd um það hvort þú fáir hráefni til að vinna frá degi til dags.
Það er stefna okkar Framsóknarmann í þessum kosningum að forðast skítkast og benda frekar á ágæti okkar tillagna og þess vegna skulum við Skaftfellingar allir spyrja okkur að því hvað skiptir okkur máli, bæði til sjávar og sveita. Stefnuskrár flokkana eru aðgengilegar og þar er allt sem segja þarf um hagsmuni okkar sveitafélags
Setjum X við B
Ásgrímur Ingólfsson
Höfundur er formaður atvinnumálanefndar á Hornafirði og skipar 13. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi
Gleðilegt sumar!




Skrifa athugasemd