Gleðilegt sumar ágætu Hornfirðingar.
Senn líður að lokum örstuttrar kosningabaráttu.
Þó ég skrifi á þennan hátt,geri ég mér fulla grein fyrir því að ég er ekkert að fara inn á þing. Ég er bara íbúi hér, kominn aftur til að vera og sem slíkur hef ég þessa skoðun.
Mér hefur verið það sönn ánægja að eiga við ykkur orðastað um ástand og horfur í þjóðfélaginu. Ég hefði gjarnan viljað hafa meiri tíma til spjalls og ráðagerða en að þessu sinni gefst ekki ráðrúm svo það bíður betri tíma.
Ég frétti að ég ætti fullar ferðatöskur góss vítt og breitt um bæinn.
Mér þykir miður ef einhverjir sveitungar mínir hafa séð sitt óvænna, pakkað sér niður í ferðatöskur og ætlað mér að bera sig út fyrir hreppamörkin. Þá fyrirhöfn verða þeir sjálfir að taka að sér. Það var aldrei ætlan mín að bjóða upp í þá vegferð að flytja fílubommbomm burtu af svæðinu, mikið frekar hefði ég kosið að fólk flykktist hingað með allt sitt hafurtask og bros á vör en ekki með þann svip sem gestir frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins á Kaffihorninu um daginn báru og birtust myndir af á þessum vettvangi. Ég skil vel að drungi hvíli yfir fólki sem er að kveðja sinn stríðalda “snata” til margra ára en ég ráðlegg Hornfirðingum að taka gleði sína á ný og horfa glaðbeitt fram á veg. Kannske birtist einhver annar jónsen fyrr en varir en þá í öðrum og betur innréttuðum flokki.
Eftir að hafa hitt fólk úr öllum atvinnugreinum tel ég mig margs vísari um afl og stöðu atvinnulífsins hér í héraði, með miklu meiri vitneskju en ég hafði, þó ég sé borinn hér og barnfæddur en skroppið frá smástund.
Ég hef sannfærst um kraftinn og dugnaðinn sem býr í ukkur, hugmyndaflugið, útsjónarsemina og áræðið sem löngum hefur einkennt íbúa hér.
Ég hlakka til að takast á við þau verkefni með ykkur sem hér blasa við, Vatnajökulsþjóðgarð, veginn yfir Hornafjarðarfljót og margt fleira spennandi sem bíður okkar.
Einhversstaðar hefur formaður bæjarráðs tjáð sig um kvótamál sveitunganna. Ég finn ekki þá umsögn í fljótu bragði enda ekki mjög spenntur fyrir henni ef satt skal segja.
Ég sé að á þessum vettvangi hér skrifar formaður atvinnumálanefndar sveitarfélagsins og ber sig aumlega yfir árásum formanns bæjarráðs, sem gerður er að talsmanni “vinstri flokkanna”. Vinstri hægri, vinstri hægri, snú snú. Þá vita kjósendur það listi Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi er ekki vinstri listi fyrir þessar kosningar spurning með lista þeirra í öðrum kjördæmum.
Ég verð að lýsa yfir ánægju minni með kraft unga fólksins hér. Búið er að stofna allavega tvö ungliðafélög sem mér er kunnugt um þ.e. félag ungra Vinstri grænna og ungra Framsóknarmanna. Ég óska þessu unga fólki til hamingju með sín félög og vænti þess að þau leggist ekki í ferðatöskufeeling.
Þórbergur Torfason
Höfundur skipar 6. sæti VG.
Flokksins sem tók að sér samvinnuhugsjónina eftir pólskiptin.




Skrifa athugasemd