Pistlar og pólitík
Samfylkingin á Hornafirði
Samfylkingin á Hornafirði

16.02.2010 Pistlar og pólitík

Félagsfundur Samfylkingarinnar

Framboðsmál

 

Samfylkingin á Hornafirði heldur félagsfund fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20:00 í húsnæði Afls við Víkurbraut. Umræðuefni fundarins verður undirbúningur sveitarstjórnakosninga í vor.

Í sveitarstjórnarkosningum vorið 2006 bauð Samfylkingin í fyrsta sinn fram undir eigin merkjum, náði góðri kosningu og fékk tvo menn kjörna. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur Samfylkingin verið í meirihlutasamstarfi með Framsóknarflokknum. Samfylkingarfólk hefur fullan hug á því að halda áfram að vinna áfram að góðum verkum í þágu samfélagsins og íbúanna.

Staða sveitarsjóðs er sterk og tekist hefur að sigla fjármálum sveitarfélagsins í örugga höfn á erfiðum tímum í íslensku efnahagslífi. Traust fjármálastjórn verður ekki einfalt verkefni fyrir sveitarfélögin í landinu á næstu árum enda gengur þjóðin í gegnum meira samdráttarskeið nú en hún hefur séð í langan tíma. Framundan er því áfram snúin sigling fyrir sveitarfélagið en Samfylkingin hefur fullan hug á því að styrkja stöðu sína í bæjarstjórn Hornafjarðar til þess að leggja sín lóð á vogarskálarnir til þess að tryggja áframhaldandi trausta og örugga stjórn sveitarfélagsins.

Stjórn Samfylkingarinnar hvetur allt félagshyggjufólk til að mæta á fundinn og ákveða með hvaða hætti verður valið á lista Samfylkingarinnar fyrir komandi kosningar.

 

Stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica