Pistlar og pólitík
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson

19.10.2011 Pistlar og pólitík

Að bryðja í sig sjálfstraust

Ábyrg meðferð fjármuna er grundvallarþáttur í starfsemi hvers sveitarfélags. Þetta ber öllum kjörnum fulltrúum að hafa í huga við ákvarðanatöku í bæjarstjórn.

Efnahagshrunið og fjárhagsvandræði margra sveitarfélaga í kjölfarið hafa svo rennt frekari stoðum undir þessi sannindi. Árangur bæjarstjórnar Hornafjarðar á síðasta kjörtímabili í rekstri sveitarfélagsins ber þess skýr merki að þessi alkunnu sannindi hafi verið leiðarstef í störfum hennar - og við skulum vona að svo verði áfram.

 

Viðvarandi nemendafækkun - hagræðing nauðsynleg 

Í flestum - ef ekki öllum - sveitarfélögum eru fræðslumálin stærsti einstaki útgjaldaliðurinn. Innan fræðslumálanna er það rekstur grunnskóla sem tekur mest til sín í rekstrinum. Af þeim sökum ber bæjarfulltrúum að fylgjast mjög vel með rekstri grunnskólans og leita allra leiða til hagræðingar. Þetta á ekki síst við þegar skólastigið glímir við viðvarandi nemendafækkun. Það á við um Grunnskóla Hornafjarðar og því miður sér ekki fyrir endann á þeirri þróun.

Meðvituð um þessar staðreyndir tók bæjarstjórn Hornafjarðar eina stærstu ákvörðun, sem tekin hefur verið í skólamálum á Hornafirði, haustið 2008 - rétt fyrir hrun. Hún fólst í því að skólahald í Nesjaskóla var flutt út á Höfn. Svo ákvörðunin næði fram að ganga varð að ráðast í viðamiklar framkvæmdir og endurbætur á húsnæði Hafnarskóla. Einnig var tekin ákvörðun um að flyta 7. bekk úr Hafnarskóla yfir í Heppuskóla. Framkvæmdirnar í Hafnarskóla og flutningur 7. bekkjar voru forsenda þess að hagræðingin, sem stefnt var að, næði fram að ganga.

 

7. bekkur fluttur í Heppuskóla - bráðabirgðalausn 

Flutningur 7. bekkjar var í raun erfiðasti hjallinn á þessari vegferð. Umræðan var á þeim nótum að um tímabundna ráðstöfun væri að ræða svo koma mætti nemendum 1., 2. og 3. bekkjar fyrir á nýjum stað. Engin fagleg rök lágu til grundvallar ákvörðun um flutning 7. bekkjar á milli skólastiga. Miðað við nýtingu núverandi húsnæðis Grunnskóla Hornafjarðar er ljóst að ekki er lengur þörf á þessu bráðabirgðaúrræði.

Framkvæmdir og endurbætur á Hafnarskóla kostuðu bæjarsjóð um 130 milljónir króna. Var því um stóra og dýra framkvæmd á mælikvarða sveitarfélagsins að ræða. Á móti kom stærsta hagræðingaraðgerð í skólamálum á Hornafirði á síðustu árum - lokun Nesjaskóla.

 

Bæjarsjóður bara látinn borga - engar hugmyndir um hagræðingu 

Nú hyggur meirihlutinn í bæjarstjórn á framkvæmdir og endurbætur á húsnæði grunnskólans í Heppuskóla. Ef að líkum lætur þá er um mun dýrari framkvæmd að ræða en í tilviki Hafnarskóla. Stærsti munurinn er þó sá að engin hagræðing er fyrirsjáanleg í rekstri grunnskólans í kjölfar framkvæmdanna. Engin athugun hefur farið fram á því hvort framkvæmdirnar geti leitt til hagræðingar í rekstri grunnskólans. Hér nægir að nefna þann möguleika að segja upp leigusamningum um húsnæði undir handmenntahús í gamla vöruhúsinu og nýta húsnæði Heppuskóla undir þá starfsemi skólans. Þetta er að mínu mati ekki til marks um ábyrga fjármálastjórn.

Mér þykir ekki síður alvarlegt að meirihluti bæjarstjórnar ætlar bjóða sjálfum sér upp á það að taka ákvörðun um þessar kostnaðarsömu framkvæmdir án þessi að fyrir liggi nokkur framtíðarsýn um það hvort 3 eða 4 árgangar verði til framtíðar í Heppuskóla. Sú ákvörðun hvílir alfarið á herðum stjórnenda frá ári til árs en meirihluti bæjarstjórnar skilar auðu. Hann ætlar bara að láta útsvarsgreiðendur borga. Fulltrúar Framsóknarflokksins í bæjarstjórn sýna umræðunni og áhyggjum foreldra af flutningi 7. bekkjar fullkomið virðingarleysi með áhuga - og afstöðuleysi sínu til málsins.

 

Lágmark að forsendur liggi fyrir - 3 eða 4 árgangar í húsnæðinu? 

Til þess að bæjarstjórn Hornafjarðar geti uppfyllt skilyrði fyrir inngöngu í hóp þeirra, sem hafa ábyrga meðferð fjármuna að leiðarljósi, verður bæjarstjórn að gera tvennt að mínu mati áður en ákveðið verður að fara í þessar dýru framkvæmdir. Hún verður að kanna til hlítar alla möguleika á hagræðingu í rekstri grunnskólans í tengslum við framkvæmdirnar. Einnig finnst mér það algjört lágmark að fulltrúar meirihlutans bryðji nú tvöfaldan skammt af sjálfstraustspillum og leyfi sér að krefjast þess að fyrir liggi, áður en til ákvörðunar kemur, hvort um er að ræða húsnæði fyrir 3 eða 4 árganga í Grunnskóla Hornafjarðar - fyrst þeir treysta sér ekki til að móta þá stefnu sjálfir.

 

Árni Rúnar Þorvaldsson

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica