Enn um hagræðingu í skólakerfinu
Áður hefur verið nefnt að ábyrg meðferð fjármuna er grundvallarþáttur í starfsemi sveitarfélaga. Óþarft er því að fjölyrða frekar um það að svo stöddu.
Rekstur leik - og grunnskóla er ólíkur að því leyti að foreldrar og forráðamenn greiða fyrir aðgang barna sinna að því starfi sem fram fer á leikskólum, skv. gjaldskrá. Á undanförnum árum hefur hlutur foreldra í rekstri leikskólanna á Hornafirði farið hratt minnkandi. Að sama skapi hefur kostnaður almennra skattgreiðenda við rekstur leikskólanna aukist til muna. Ekki er hægt að segja að þetta sé í ósamræmi við stefnu sveitarfélagsins enda hefur í fjárhagsáætlunargerð verið lagt upp með að verja stöðu heimila og fyrirtækja í sveitarfélaginu eins og kostur er.
Hagræðing eða hækkun leikskólagjalda
Þessi þróun leggur enn ríkari skyldur á herðar kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn að leita leiða til hagræðingar í rekstri leikskólanna. Eðlilegt er að það sé gert enda hinn kosturinn að hækka leikskólagjöld. Sú staðreynd að leikskólarnir glíma, eins og grunnskólinn, við nemendafækkun ýtir enn frekar undir mikilvægi þess að kjörnir fulltrúar hugi að hagræðingu á leikskólastiginu.
Einn grunnskóli - tveir leikskólar
Rúm fimm ár eru liðin síðan bæjarstjórn Hornafjarðar - að frumkvæði Framóknarmanna - tók ákvörðun um aðskilnað leikskólanna á Hornafirði. Yfirstandandi skólaár er fimmta starfsár Grunnskóla Hornafjarðar síðan sú stefna var mörkuð að sameina grunnskólana í sveitarfélaginu undir eina stjórn. Sú stefna fól í sér að einn skólastjóri skyldi stýra starfinu í hverju húsi grunnskólans.
Þörf á endurskoðun
Tímabært er að huga að því hvernig til hefur tekist með þessi ólíku rekstrarform á fræðslusviðinu. Greinilegt er að endurskoðunar er þörf á stjórnfyrirkomulagi grunnskólans því sl. vor tók meirihluti bæjarstjórnar ákvörðun um að auka kostnað við yfirstjórn grunnskólans með því að setja á laggirnar nýja stöðu verkfnisstjóra. Um stöðu og hlutverk leikskólanna hafa farið fram miklar umræður í bæjarstjórn, skólanefnd og samfélaginu.
Einn skólstjóri á hvoru skólastigi?
Spurningirnar, sem vakna við þessar vangaveltur, eru hvort sameina eigi leikskólana og hvort ástæða er til að breyta stjórnfyrirkomulagi grunnskólans. Í þeim efnum er meginálitaefnið það hvort ná megi fram rekstrarsparnaði með því að einn skólastjórnandi væri yfir hvoru skólastigi, þ.e. einn leikskólastjóri og einn grunnskólastjóri, með deildarstjóra sér til fulltingis án þess að það komi niður á þjónustu við nemendur.
Árni Rúnar Þorvaldsson
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar




Skrifa athugasemd