Pistlar og pólitík
Heppuskóli
Heppuskóli

10.04.2012 Pistlar og pólitík

Endurbætur á Heppuskóla

Unnið hefur verið að undirbúning endurbóta á Heppuskóla um allangt skeið.  Leitað var til arkitekta um hönnun og ráðgjöf við útboðsskilmála.  Í stórum verkum styðst sveitarfélagið við slíka ráðgjöf.  Að þessu sinni hjá ágætum ráðgjöfum sem áður hafa liðsinnt bæjarráði Hornafjarðar, þegar Sundlaug Hafnar var í byggingu. 

Útboðsskilmálar voru undirbúnir af ráðgjöfum og lagðir fyrir bæjarráð þar sem allir fulltrúar í bæjarráði höfðu möguleika á að koma með athugasemdir og sníða af þá agnúa sem hugsanlega voru í útboðsskilmálum, þar á meðal áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar sem hefur málfrelsi og tillögurétt í ráðinu.

Það hefur komið fram á fundum bæjarráðs Hornafjarðar þar sem bæjarfulltrúi Samfylkingar er áheyrnarfulltrúi hvernig þeir ráðgjafar lögðu málið upp.  Það var þannig að í skilmálum var krafist gagna um afkastagetu, núverandi stöðu fyrirtækis, reynslu þess af sambærilegum verkefnum, gæðakerfi, getu stjórnenda til að að stjórna verkinu, gögn um fjárhagslega stöðu og stöðu gagnvart opinberum aðilum.  Hugmynd ráðgjafanna var sú að ef sveitarfélagið treysti verktaka sem býður í verkið að þá bættu þeir inn klausunni „ef um er beðið“ til þess að sleppa við mikla ónauðsynlega vinnu við útvegun gagna.

Við opnun tilboða býður Þingvað ehf. 18 m.kr. lægra í verkið en Eykt ehf.  Þá strax stóð hugur bæjarráðs að semja við lægstbjóðanda enda hafði fyrirtæki reynst sveitarfélaginu á undanförnum árum.  Þegar á reyndi og lögfræðin kom til skjalanna var óljóst hvort að orðaval ráðgjafanna í útboðsskilmálum stæðist þar á meðal fyrir dómstólum ef á reyndi.

Bæjarráð stóð því frami fyrir úrlausnarefni.  Eftir skoðun og umræður var fyrsti kostur sá að ganga til sáttar við Eykt ehf og síðan gerð verksamnings við Þingvað.  Niðurstaðan úr því var að greiða Eykt umrædda upphæð en standa eftir sem áður með verksamning í höndunum sem tryggði skattgreiðendum 13 m.kr. hagstæðari niðurstöðu í verkið en ella hefði orðið. 

Bæjarráð Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica