Pistlar og pólitík
Kristján Sigurður Guðnason
Kristján Sigurður Guðnason

18.04.2012 Pistlar og pólitík

Knatthús

Það hefur verið ánægjulegt að sjá aðstöðu fyrir íþróttafólk stórbatna á síðustu árum og þarf ekki að tíunda hér þær framkvæmdir.

Það er sömuleiðis fagnaðarefni að sjá hvað umhverfi íþróttasvæðisins er orðið fallegra, frágengin bílastæði og gangstéttir og í framtíðinni mun sá gróður sem plantaður hefur verið nærri íþróttasvæðinu vonandi vaxa og veita meira skjól.
Undanfarin ár hefur þrengst mjög um í íþróttahúsinu vegna fjölbreyttara íþróttastarfs.

Knatthúsið verður því mikil lyftistöng fyrir íþróttalífið og þá sérstaklega knattspyrnuna. Knattspyrnan fær núna aftur þak yfir höfuðið en önnur iðkun getur vel átt heima í nýja knatthúsinu. Ég veit að framkvæmdastjóri Sindra hefur verið að skoða ýmsa möguleika varðandi færanlegt gólf í húsið sem mætti setja upp tímabundið fyrir aðrar íþróttagreinar. Hvet ég til þess að þau mál verði skoðuð vandlega.

Hornafjörður státar nú af íþróttaaðstöðu eins og hún gerist best. Ungmennaráð Hornafjarðar hefur fundað reglulega og ég er sammála áherslum þeirra um betri aðstöðu fyrir jaðaríþróttir og hvet til að taka ábendingar þeirra alvarlega. Þeir sem finna sig ekki í hefðbundnu tómstundastarfi þurfa líka aðstöðu þrátt fyrir að þeir hópar kunni að vera fámennari. Við vitum að aðstaðan ein og sér leiðir ekki til öflugrar starfsemi, til þess þarf líka áhugasamt fólk og félagasamtök en áríðandi er að við séum sífellt vakandi gagnvart því að bæta aðstöðuna.
Allar kannanir sýna að öflugt íþrótta- og tómstundastarf er einhver virkasta forvörn sem völ er á. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að foreldrar hvetji börn sín og sýni þeim stuðning og áhuga í íþrótta- og tómstundastarfi.

 
Skotvöllur
 
Skotfélag Hornafjarðar hefur í allmörg ár leitað að æfingasvæði í samvinnu við sveitarfélagið.  
Ekki er komin niðurstaða í málið en ég legg áherslu á að sveitarfélagið leiti allra leiða til að koma þessari aðstöðu upp. Það er m.a. orðið mikilvægara eftir að þeir sem fá úthlutað veiðileyfum á hreindýr verða að hafa hæfnispróf sem eingöngu er hægt að taka á viðurkenndum skotvöllum.
 
Kristján Guðnason
bæjarfulltrúi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica