Pistlar og pólitík
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson

04.11.2012 Pistlar og pólitík

Flokksval Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Árna Rúnar í 2. – 4. sæti

Rafrænt flokksval Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fer fram 16. og 17. nóvember nk. Þar geta flokksfélagar og skráðir stuðningsmenn tekið þátt á netinu.

Til þess að geta tekið þátt þarf fólk því annað hvort að skrá sig í flokkinn eða sem stuðningsmenn. Þetta er hægt að gera á netinu með því að smella hér.

Ég hef verið bæjarfulltrúi bæjarstjórn Hornafjarðar frá árinu 2006 og m.a. annars verið forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs. Það er mikilvægt í stóru kjördæmi eins og Suðurkjördæmi er að jaðarsvæðin eigi sér öfluga málsvara. Þess vegna hef ég meðal annars ákveðið að gefa kost á mér í 2. – 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum.

Til þess að jaðarsvæði þessa stóra og víðfeðma kjördæmis geti átt kröftuga rödd á Alþingi á næsta kjörtímabili þarf ég á stuðningi Hornfirðinga að halda. Ég óska eftir ykkar stuðningi í 2. – 4. sæti í flokksvalinu 16. og 17. nóvember nk.

Ég hvet alla til þess að kíkja Facebook stuðningssíðuna til þess að kynna sér baráttumálin og kosningabaráttuna.

Árni Rúnar Þorvaldsson
Bæjarfulltrúi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica