Pistlar og pólitík
Guðrún Erlingsdóttir
Guðrún Erlingsdóttir

03.11.2012 Pistlar og pólitík

Guðrún Erlingsdóttir býður sig fram í 2. – 3. sæti.

Guðrún Erlingsdóttir varaþingmaður og heilsumeistaranemi býður sig fram í 2. – 3. sæti í rafrænu flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi 16. -17. nóvember n.k.

Guðrún er búsett í Vestmannaeyjum og hefur helgað verkalýðsbaráttunni starfskrafta sína. Verið virk í sveitarstjórnar- og félagsmálum. Tók sæti sem varaþingmaður á Alþingi í október 2009. Er stjórnarformaður Viðlagatryggingar Íslands, ásamt setu í fleiri nefndum.

Guðrún leggur áherslu á réttlátt þjóðfélag þar sem raunverulegur jöfnuður ríkir. Þar sem náttúruauðlindir, sameign þjóðarinnar eru nýttar af skynsemi og virðingu. Einnig leggur hún áherslu á að hlúð sé að matarkistu og fyrirtækjum Suðurkjördæmis til sjávar og sveita.
Óhefðbundnar leiðir í heilbrigðismálum eru Guðrúnu hugleiknar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica