Stuðningur ykkar er mikilvægur
Kosningabaráttan vegna flokksvals Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi 16. og 17. nóvember nk. er núna í algleymingi.
Frestur til að skrá sig í flokkinn eða sem stuðningsmann rennur út á miðnætti í kvöld, fimmtudag 8. nóvember. Þeir sem vilja taka þátt í flokksvalinu geta gert það með því að skrá sig hér á þessari síðu
Það er ljóst að ég þarf á öflugum stuðningi að halda til þess að geta átt góða möguleika í þessu flokksvali og hvet ég því alla, sem hafa áhuga á að taka þátt til að skrá sig – og hafa þar með áhrif.
Hægt er að fylgjast með kosningabaráttu minni á stuðningsmannasíðunni á Facebook.
Mikilvægt er í þessu stóra kjördæmi að Hornajörður eigi sér sterkan málsvara innan þess. Ég tel mig uppfylla þau skilyrði og leita þess vegna eftir stuðningi ykkar í þessu flokksvali og vona að þið séuð tilbúin að taka þátt í þessari baráttu með mér.
Árni Rúnar Þorvaldsson
Býður sig fram í 2. – 4. sæti




Skrifa athugasemd