Samfélagssjóður Hornafjarðar
Sjóðurinn
Haustið 2009 tóku félagasamtök á Hornafirði höndum saman um að setja á fót söfnunarreikning fyrir einstaklinga og fjölskyldur í fjárhagserfiðleikum. Þau samtök sem stóðu að stofnun sjóðsins voru Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands, Hafnarsöfnuður og Lionsklúbbur Hornafjarðar. Haustið 2010 bættist Lionsklúbburinn Kolgríma við og hafi önnur félagasamtök áhuga á að koma að sjóðnum á einhvern hátt geta þau haft samband við stjórn sjóðsins í gegnum netfangið samfelagssjodur@hornafjordur.is.
Samfélagssjóður Hornafjarðar er byggður upp til að styrkja í heimabyggð og sem vettvangur fyrir einstaklinga og fyrirtæki í sveitarfélaginu sem vilja láta gott af sér leiða og styrkja nærsamfélagið.
Fyllsta trúnaðar er gætt vegna úthlutnar úr sjóðnum sem verður í höndurm stjórnar sjóðsins sem starfar undir Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands. Fyrirhugað er að halda sjóðnum virkum allt árið.
Fyrir þá sem vilja leggja sjóðnum lið er reikningsnúmerið 0172-05-060172, kt.611112-0170 en allar nánari upplýsingar veitir stjórn sjóðsins í gegnum netfangið mailto:samfelagssjodur@hornafjordur.iss.
Heimilisfang
Samfélagssjóður Hornafjarðar
Hafnarbraut 27
780 Höfn Hornafirði
Sími 470 8000
Tengt efni:
Umsóknir í Samfélagssjóð hér á (pdf)


