Handbók KND Sindra
UMF. Sindri
Knattspyrnudeild
Handbók
Gildir til 31.12.2010
Efnisyfirlit
1. Inngangur .................................................................................................................. 2
2. Helstu upplýsingar....................................................................................................... 2
3. Stjórn knattspyrnudeildar ............................................................................................ 2
4. Framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar .......................................................................... 2
5. Skipurit knattspyrnudeildar Sindra??.. ......................................................................... 3
6. Æfingaaðstaða knattspyrnudeildarinnar ........................................................................ 4
7. Barna- og unglingaflokkar ........................................................................................... 4
7.1 Tilgangur ................................................................................................................. 4
7.2 Markmið .................................................................................................................. 4
7.3 Yngriflokkaráð .......................................................................................................... 4
7.4 Þjálfari .................................................................................................................... 5
7.5 Markmannsþjálfun ................................................................................................... 7
7.6 Foreldraráð ............................................................................................................. 7
8. Helstu áherslur í þjálfun barna- og unglingaflokka ......................................................... 8
9. Æfingatöflur ............................................................................................................... 10
10. Utanlandsferðir ......................................................................................................... 10
11. Ferðalög innanlands .................................................................................................. 10
12. Búningar .................................................................................................................. 10
13. Sjúkrataska ............................................................................................................. 10
14. Félagslegt starf innan flokksins .................................................................................. 11
15. Skipulagning móta .................................................................................................... 11
16. Fjáraflanir í flokkum .................................................................................................. 11
17. Stuðningur foreldra ................................................................................................... 12
18. Uppskeruhátíð .......................................................................................................... 12
19. Myndir ..................................................................................................................... 12
20. Heilræði til leikmanna ................................................................................................ 13
21. Forvarnir .................................................................................................................. 14
22. Agareglur fyrir barna- og unglingastarf ??.................................................................... 14
HANDBÓK SINDRA KNATTSPYRNUDEILD
1. Inngangur
Stjórn knattspyrnudeildar Sindra og þjálfarar hafa að frumkvæði yngriflokkaráðs unnið þessa handbók fyrir knattspyrnudeildina. Markmið með útgáfu handbókarinnar er að foreldrar og iðkendur hafi á einum stað helstu upplýsingar um starfið í deildinni.
Það er von þeirra aðila sem starfa fyrir deildina að upplýsingarnar komi að góðum notum, ekki aðeins fyrir foreldra og iðkendur, heldur ekki síður að almenningur á Hornafirði sé upplýstur um hina umfangsmiklu þjónustu sem knattspyrnudeild Sindra veitir íbúum Hornafjarðar.
2. Helstu upplýsingar
Skrifstofa Sindra er í Sindrahúsinu og má finna upplýsingar um opnunartíma, stjórn, framkvæmdastjóra, þjálfara og foreldraráð auk annarra upplýsinga á heimasíðu Sindra sem er www.umfsindri.is. Þar má einnig finna íþróttadagatal knattspyrnudeildar Sindra. Einnig er foreldrum og iðkendum bent á heimasíðu KSÍ www.ksi.is en þar eru upplýsingar um mót og ýmislegt fræðslu- og fréttaefni.
3. Stjórn knattspyrnudeildar
Knattspyrnudeild er ein af 8 deildum innan Sindra. Með æðsta vald í Sindra fer aðalstjórn. Framkvæmdastjóri Sindra starfar í umboði aðalstjórnar. Í stjórn knattspyrnudeildar sitja 7 manns, 3 úr meistaraflokksráði, 3 úr yngri flokkaráði auk formanns deildarinnar. Stjórn deildarinnar ber endanlega ábyrgð á öllum málefnum hennar. Helstu verkefni stjórnar eru skipulagsmál deildarinnar, stefna, markmið, gæðamál, fjárhagur, fjármögnun og aðstaða. Meistaraflokkar og annar flokkur karla og kvenna annars vegar og barna- og unglingastarf, hins vegar, eru reknar sem sjálfstæðar rekstrareiningar. Það er algjörlega óheimilt að færa fjármuni frá barna- og unglingastarfi til meistaraflokka félagsins.
4. Framkvæmdastjóri Umf.Sindra
Framkvæmdastjóri starfar fyrir stjórn deildarinnar. Hann hefur umsjón með fjármálum, daglegum rekstri og daglegum samskiptum fyrir hönd deildarinnar. Framkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri vallarmannvirkja í samvinnu við nefnd um rekstur vallarmannvirkja. Framkvæmdastjóri er jafnframt verkefnisstjóri í ýmsum verkefnum innan deildarinnar. Óheimilt er að stofna til skuldbindinga fyrir knattspyrnudeild Sindra án samráðs við framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar.
5. Skipurit knattspyrnudeildar Sindra
6. Æfingaaðstaða knattspyrnudeildarinnar
Sindravellir
Æfingasvæði
Frímerkið
Sparkvöllur
Íþróttahús Heppuskóla
7. Barna- og unglingaflokkar
Stjórn yngriflokkaráðs hefur yfir umsjón með málefnum barna og unglinga (3. flokkur og yngri) í knattspyrnudeild Sindra. Starfsemi yngriflokka deildarinnar er sérstök rekstrareining innan knattspyrnudeildar og er gerð upp sjálfstætt í uppgjöri deildarinnar. Með hverjum flokki starfar þjálfari og foreldraráð.
7.1 Tilgangur
Tilgangur yngriflokkastarfs knattspyrnudeildar er að standa að traustu og öflugu uppbyggingarstarfi gagnvart félagsmönnum sínum. Auka þannig líkamlegt og andlegt atgervi þeirra með það að markmiði að efla úthald, tilfinningalegt jafnvægi, þroska, sjálfstraust, samvinnu og félagslega færni.
7.2 Markmið
Markmið yngriflokkastarfs knattspyrnudeildar er að skapa félagsmönnum sínum tækifæri til að setja sér markmið og ná þeim, markmið sem eru í samræmi við getu og áhuga hvers og eins þeirra.
Markmið yngriflokkastarfs knattspyrnudeildar er að búa til leikmenn í meistaraflokka félagsins, stjórnarmenn, dómara og leiðtoga sem geta haldið starfi félagsins gangandi jafnt í starfi yngri flokka sem og í meistaraflokki. Þjálfun og uppbygging í yngri flokkum tekur mið af þessari stefnu félagsins.
Markmið yngriflokkastarfs knattspyrnudeildar er að leikmenn sem skara fram úr hjá félaginu fái verkefni við hæfi og stutt sé við framfarir hæfileikaríkra leikmanna.
7.3 Yngriflokkaráð
Stjórn yngriflokkaráðs skipa þrír aðilar þ.e. formaður og tveir meðstjórnendur.
Formaður yngriflokkaráðs á sæti í stjórn knattspyrnudeildar og myndar þar með tengsl á milli stjórnar og yngriflokkaráðs.
Stjórn yngriflokkaráðs heldur að jafnaði fund í hverjum mánuði og reglulega með fulltrúum (formanni) úr hverjum flokki í barna- og unglingaflokkum. Fundargerðir eru sendar framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni:
Yngriflokkaráð heldur utan um starfsemi yngri flokka Sindra (3. - 7.fl. drengja og stúlkna) í samráði við stjórn knattspyrnudeildar og framkvæmdastjóra, en stjórn knattspyrnudeildar hefur æðsta ákvörðunarvald innan knattspyrnudeildar Sindra.
Yngriflokkaráð stuðlar að markvissri uppbyggingu á knattspyrnu barna og unglinga á vegum Sindra, tryggir jafnræði í starfi stúlkna- og drengjaflokka hjá Sindra, skipuleggur starfið og skilgreinir markmið þess og mótar þannig heildarstefnu sem hægt er að vinna skipulega eftir. Þessi stefnumótunarvinna þarf samþykki stjórnar knattspyrnudeildar til þess að hún taki formlega gildi.
Yngriflokkaráð hefur að leiðarljósi stefnuyfirlýsingu ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga.
Yngriflokkaráð er upplýsingaskylt gagnvart stjórn knattspyrnudeildar Sindra.
Stjórn yngriflokkaráðs í samvinnu við framkvæmdastjóra annast fjárhagslegan rekstur yngri flokkanna. Stjórn yngriflokkaráðs ræður þjálfara. Verði á einhvern hátt misbrestur í starfi og hátterni þjálfara, skal stjórn yngriflokkaráðs boða viðkomandi þjálfara á fund til að ræða málin og áminna hann ef þurfa þykir. Verði enn vart við óánægju með starf þjálfara getur stjórn yngriflokkaráðs sagt upp samningi við hann.
Yngriflokkaráð sér um kaup á handbók fyrir þjálfara, í upphafi starfsárs, en unnið er eftir Kennslu- og æfingaskrá KSÍ fyrir barna- og unglingaþjálfun í knattspyrnu.
Yngriflokkaráð reynir af fremsta megni að skapa jákvæða ímynd barna og unglingaknattspyrnu á vegum Sindra, bæði í drengja og stúlknaflokkum,og stuðlar að drengskap iðkenda, jafnrétti, vináttu og umburðarlyndi við náungann.
Yngriflokkaráð setur reglur um framkomu leikmanna á æfingum, í leikjum, keppnisferðum og gagnvart félaginu í samráði við framkvæmdastjóra og stjórn. Séu þær reglur brotnar skal stjórn yngriflokkaráðs veita þeim áminningu, en endanleg ákvörðun um framhaldið er í höndum stjórnar knattspyrnudeildar Sindra.
Komi upp óleysanlegur ágreiningur á milli yngriflokkaráðs og foreldraráðs og/eða þjálfara, skal stjórn knattspyrnudeildar Sindra skera úr um málið.
Yngriflokkaráð sér til þess að þjálfarar sæki þjálfaranámskeið á vegum KSÍ.
Yngriflokkaráð sér til þess að þjálfarar fái nauðsynlegan klæðnað merktan Sindra til að klæðast á æfingum, í leikjum og í keppnisferðum.
Yngriflokkaráð vinnur skipulega að fjölgun iðkenda í samráði við framkvæmdastjóra og þjálfara.
Yngriflokkaráð skipuleggur uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Sindra ásamt þjálfurum flokka og framkvæmdastjóra.
Yngriflokkaráð fylgir eftir og kynnir vímu- og tóbaksvarnastefnu Sindra í öllum flokkum.
Yngriflokkaráð, sér til þess að þjálfarar vinni skipulega með iðkendur og meti framfarir þeirra með markvissum reglubundnum hætti.
Yngriflokkaráð sér til þess í samráði við þjálfara að í lok keppnistímabils skili þjálfarar af sér mati á árangri og framförum. Einnig að þjálfarar skili af sér starfsskýrslu með upplýsingum um þá þætti sem teknir hafa verið fyrir á tímabilinu hvað varðar liðið í heild og leikmenn þess.
Stjórn yngriflokkaráðs skilar í október til stjórnar knattspyrnudeildar rekstraráætlun næsta árs fyrir yngri flokka félagsins.
7.4 Þjálfari
Þjálfarar bera ábyrgð á þjálfun hvers flokks og faglegri leiðsögn. Þeir stjórna leikjum og bera ábyrgð á búnaði og aðstöðu við æfingar og leiki. Þjálfarar bera ábyrgð á skráningum iðkenda og vinna með foreldraráðum að félagslegum verkefnum.
Helstu verkefni:
Þjálfari er ráðinn af yngriflokkaráði knattspyrnudeildar Sindra og skal starfa samkvæmt reglum og ákvörðunum stjórnar knattspyrnudeildar.
Þjálfarar á vegum Sindra skulu hafa lokið a.m.k. I. og II. Stigi þjálfaranámskeiða KSÍ eða sambærilegu námi erlendis. Þó skal stefnt að því að allir þjálfarar ljúki UEFA-B þjálfaraprófi.
Þjálfarar skulu þjálfa samkvæmt stefnuyfirlýsingu ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga og kennslu og æfingaskrá KSÍ fyrir barna og unglingaþjálfun í knattspyrnu.
Hver þjálfari fær til umráða ákveðinn fjölda bolta, vesta og annan búnað til æfinga og keppni fyrir viðkomandi flokk, sem hann skal bera fulla ábyrgð á.
Þjálfari skal vera mættur a.m.k. 10 mínútum fyrir auglýstan æfingatíma og ekki fara af æfingu fyrr en allir iðkendur eru farnir af vallarsvæði eftir að æfingu lýkur.
Ef þjálfari forfallast á æfingu skal hann sjá til þess að staðgengill annist þjálfun á sömu forsendum og greint er frá í starfslýsingu þjálfara, og tilkynna framkv.stjóra forföllin.
Þjálfari ber ábyrgð á því að leikmenn séu boðaðir á æfingar og skulu í upphafi starfsárs kynna iðkendum og forráðamönnum þeirra skriflega æfingaáætlun (tímasetningu og æfingafjölda á viku). Allar breytingar á æfingatímum skal kynna sérstaklega.
Þjálfari skal í upphafi starfsárs kynna iðkendum skriflega fyrirsjáanlega þátttöku flokksins í mótum á starfsárinu. Verði röskun á þeirri áætlun skal þjálfari kynna þær breytingar.
Þjálfari skal virða óskir og ákvarðanir vallarstjóra um staðsetningu æfinga og keppnisleikja. Að lokinni æfingu/leik skal þjálfari ganga frá búnaði sem hann notar til æfingar/leiks.
Þjálfarar skulu klæðast fatnaði merktum Sindra í öllum leikjum á vegum félagsins. Þá er æskilegt að þjálfarar klæðist fatnaði merktum Sindra á æfingum sé þess nokkur kostur og séu að öðru leyti snyrtilegir til fara.
Þjálfari skal leitast við að byggja upp sem bestan félagsanda í flokknum í samráði við iðkendur og foreldra/forráðamenn þeirra.
Þjálfari skal funda reglulega með foreldraráði um málefni viðkomandi flokks, m.a.um félagsanda, framfarir, fjáröflun, æfingatíma, keppnisferðir o.s.frv.
Þjálfari kemur upplýsingum um væntanlega leiki og úrslit leikja til framkvæmdastjóra, á þannig formi að hægt sé að setja upplýsingarnar inn á heimasíðu knattspyrnudeildar.
Þjálfari skal, í samráði við foreldraráð og framkvæmdastjóra, skipuleggja ferðir á útileiki, í því felst m.a. að bóka Sindrarútu og fá bílstjóra. Það er á ábyrgð þjálfara að hafa frumkvæði að því. Þjálfari ber alfarið ábyrgð á keppnisbúningum flokksins, í samráði við foreldraráð. Þeir sjá um að taka þá með í ferðir og koma þeim á sama stað strax að leik loknum. Keppnisbúninga má eingöngu nota í keppnum.
Þjálfari ber ábyrgð á sjúkratösku flokksins og skal ávallt hafa hana meðferðis á æfingum, leikjum og keppnisferðum í samráði við foreldraráð. Hann gengur reglulega úr skugga um að í henni séu eftirtalin sjúkragögn: Kælisprey, plástur,skæri, teip, teygjubindi, grisjur og græðandi krem. Þegar þjálfari telur vanta gögn í sjúkratösku verður hann að láta starfsmenn íþróttahúss vita.
Óski þjálfari eftir breytingu á leikdegi hjá liði sínu skal hann í samráði við yngriflokkaráð hafa samskipti við hitt félagsliðið og KSÍ og tilkynna framkvæmdastjóra um breytinguna um leið og hún fæst samþykkt. Áður en þjálfari breytir leikdegi á heimaleik skal hann hafa gengið úr skugga um, að leikvellir Sindra séu ekki uppteknir á sama tíma og fyrirhugaður leikur á að fara fram.
Þjálfari skal markvisst stuðla að því að framkoma leikmanna hans sé Sindra til fyrirmyndar í hvívetna, innan vallar sem utan, í búningsklefum, á æfingum, í leikjum, gagnvart dómara og starfsmönnum leikja, andstæðingum, áhorfendum og eigin félagi.
Þjálfari skal sjá til þess að skipa liðsstjóra sem alla jafna kemur úr hópi foreldra/forráðamanna.
Þjálfari ber ábyrgð á því að leikskýrslur séu útfylltar fyrir leiki skv. lögum KSÍ.
Þjálfari ber ábyrgð á því að búnaður leikmanna í mótum á vegum KSÍ, sé í samræmi við reglugerð KSÍ þar að lútandi.
Þjálfari skal starfa í hvívetna eftir reglum og samþykktum knattspyrnudeildar Sindra og yngriflokkaráðs. Verði misbrestur á því er það í höndum knattspyrnudeildar, eftir umsögn yngriflokkaráðs, að ákveða um framhaldið.
Þjálfari hefur ekki rétt á að vísa iðkenda úr félaginu vegna vandamála sem koma upp í flokknum. Komi upp agavandamál í flokknum skal þjálfari tafarlaust gera foreldrum/forráðamönnum viðvart og reyna að leysa málið í samvinnu við þá.
Verði ekki bót á hegðun leikmanns skal bera þau mál undir yngriflokkaráð og leysa málið í samvinnu við það, foreldraráð viðkomandi flokks og foreldra/forráðamenn.
7.5 Markmannsþjálfun
Sérstakur þjálfari er ráðinn til þess að annast markmannsæfingar í eldri flokkum félagsins.
7.6 Foreldraráð
Á hverju hausti (15. október – 1. nóvember) er haldin foreldrafundur í hverjum flokki, þar sem þjálfari kynnir sig og gerir grein fyrir vinnutilhögun sinni, almennt er farið yfir starf flokksins og kosið í foreldraráð.
Foreldraráð sömu árganga á síðasta keppnistímabili ásamt þjálfara skulu boða til fundarins. Að jafnaði skulu þrír foreldrar skipa foreldraráð. Formaður hvers foreldraráðs situr fundi reglulega með stjórn yngriflokkaráðs.
Foreldraráð kallar foreldra í flokknum á aðra fundi eftir því sem þurfa þykir, gjarnan þegar kemur að skipulagningu á stærri viðburðum eins og keppnisferðum.
Foreldraráði er ætlað að vera tengiliður foreldra við þjálfara og stjórn yngriflokkaráðs. Í því felst m.a. að koma ákvörðun yngriflokkaráðs til foreldra þar sem við á, koma athugasemdum og kvörtunum foreldra til ráðsins og, þar sem það á við, að vera tengiliður milli foreldra og þjálfara um vandmál eða spurningar sem upp kunna að koma. Nauðsynlegt er fyrir foreldraráðin að safna upplýsingum um netföng foreldra eða forráðamanna. Þetta hjálpar mjög til við að dreifa upplýsingum um starfsemi flokksins og hjálpar einnig til við eftirfylgni við innheimtu.
Foreldraráð sinna mikilvægum verkefnum við undirbúning leikja, funda,keppnisferða, fjáraflana og annarra verkefna þar að lútandi fyrir viðkomandi flokk.
Foreldraráð skal stuðla að jákvæðu og uppbyggilegu starfi yngri flokka Sindra.
Foreldraráð skulu stuðla að því að foreldrar hvetji börnin á jákvæðan og uppbyggilegan hátt í starfi og leik og bendi þeim á mikilvægi þess að þeir sæki kappleiki þá sem börn þeirra taka þátt í eftir fremsta megni.
Foreldrar skulu að öllu jöfnu kosta ferðir og uppihald á óopinber mót.
Fjáraflanir á vegum hvers flokks eru eingöngu heimilaðar með samþykki framkvæmdastjóra Sindra.
Foreldraráð skulu skipuleggja allar ferðir flokka á Íslandsmót og æfingamót.
Foreldraráð bera ábyrgð á búningum iðkenda.
Foreldraráð hafa umsjón með myndatökum og að koma efni á heimasíðu knattspyrnudeildar Sindra.
8. Helstu áherslur í þjálfun barna- og unglingaflokka
Í kennsluáætluninni er miðað við að telja upp þá þætti er iðkendur eiga að ná tökum á í þjálfuninni. Hér fyrir neðan er gróf kennsluáætlun fyrir hvern flokk knattspyrnudeildar.
Kennsluáætlunin inniheldur markmið í tækni og leikfræði fyrir hvern flokk fyrir sig, sjá nánar Handbók KSÍ um barna og unglingaþjálfun.
7. flokkur
Megin áhersla í 7. flokki er að leikmenn;
-venjist bolta
-þjálfist í knattraki
-læri einfaldar leikbrellur
-geti spyrnt innanfótar
-geti tekið á móti bolta
Til að ná þessum markmiðum er:
-farið í léttar knattæfingar
-farið í leikræna leiki
-farið í hlaupa- og liðaleiki með og án bolta
6. flokkur
Megin áhersla í 6. flokki er að leikmenn;
-venjist bolta
-þjálfist í knattraki
-þjálfist í að reka knöttinn og geri leikbrellu
-læri innanfótarspyrnu, ristarspyrnu og sköllun
-þjálfi móttöku á bolta
-læri að taka innkast
-læri leikfræði
Til að ná þessum markmiðum er:
-leikið 1:1
-farið í ýmsar leikæfingar
-farið í ýmsar skotæfingar
-farið í leiki til að efla knatttækni og leikfræði
5. flokkur
Megin áhersla í 5. flokki er að leikmenn;
-læri að spyrna með jörðu og á lofti
-þjálfist í að skalla eftir uppstökk
-þjálfist í að taka á móti jarðarboltum og stýra þeim
-þjálfist í að taka á móti háum boltum og stýra þeim
-þjálfist í knattraki og leikbrellum
-læri leikfræði: innkast, hornspyrnu og vítaspyrnu
Til að ná þessum markmiðum er:
-skottækni æfð
-leikið 1:1
-skallatennis leikinn
-farið í ýmsar leikæfingar
-farið í undirstöðuatriði liðssamvinnu
4. flokkur
Megin áhersla í 4. flokki er að leikmenn;
-æfi spyrnur og móttaka (undir pressu)
-æfi knattrak og leikbrellur (undir pressu)
-æfi sköllun og skallaleikir spilaðir
-æfi hoppspyrna
-æfi fyrirgjafir
-skjóti á mark af ýmsum toga
-æfi hreyfingu án knattar og aðstoði knatthafa
-læri undirstöðuatriði liðssamvinnu, dýpt, fríhlaup,vídd, hreyfing, opna svæði, loka svæði, gæsla,
samþjöppun, völdun, og aðstoði
-æfi veggsendingar, knattvíxlun, framhjáhlaup.
-læri undirstöðuatriði varnarleiks, læri rétta varnarstöðu, samvinnu varnarmanna og rangstöðu
-læri rennitæklingu
-æfi föst leikatriði eins og vítaspyrnu, innköst,hornspyrnu, aukaspyrnur
Megin áhersla fyrir markmenn er að:
-grípa knött yfir höfði í kyrrstöðu og með uppstökki
-kýla knött með annarri og báðum höndum
-grípa knött eftir að hafa kastað sér
-spyrna knetti frá marki, hoppspyrna
-kasta knetti frá marki
3. flokkur
Megin áhersla í 3. flokki er að leikmenn;
-fínpússi tækni sína og fullkomni
-æfi sköllun
-æfi hoppspyrnu
-æfi fyrirgjafir eftir einleik/samspil
-skjóti á mark af ýmsum toga
-æfi rennitæklingu
-æfi rétta varnarstöðu
-æfi samleik innan liðsins
-æfi veggsendingar, knattvíxlun og framhjáhlaup
-æfi hreyfingu án knattar
- læri undirstöðuatriði liðssamvinnu, dýpt, fríhlaup,vídd, hreyfing, opna svæði, loka svæði, gæsla,
samþjöppun, völdun og aðstoð
-læri undirstöðuatriði varnarleiks, læri rétta varnarstöðu, samvinnu varnarmanna og rangstöðu
-æfi föst leikatriði eins og vítaspyrnu, innköst, hornspyrnur og aukaspyrnur
-læri að spila eftir ákveðnum leikkerfum
-læri að spila upp á rangstöðu
Megin áhersla fyrir markmenn er að:
-grípa knött yfir höfði í kyrrstöðu og með uppstökki
-kýla knött með annarri og báðum höndum
-grípa knött eftir að hafa kastað sér
-spyrna knetti frá marki, hoppspyrna
-kasta knetti frá marki
-taka þátt í leikuppbyggingu sem aftasti varnarmaður
-athuga ýmislegt í sambandi við leikfræði.
9. Æfingatöflur
Æfingataflan er á heimasíðu deildarinnar, www.umfsindri.is. Foreldrum er bent á að æfingatímar geta breyst og að fylgjast með tölvupóstsendingum frá foreldraráðum ásamt tilkynningum frá þjálfurum á æfingum og á heimasíðunni. Ávallt er reynt að skipuleggja æfingatöflur þannig að þær rekist ekki á aðra íþrótta- og tómstundaiðkun barna í hverjum flokki. Við uppsetningu á töflu þarf auk þess að taka tillit til óska þjálfara og tekur æfingataflan mið af því.
10. Utanlandsferðir
Stefnt að því að 3. fl. drengja og stúlkna fari annað hvert ár í keppnisferðir til útlanda. Slíkar ferðir eru skipulagðar í samvinnu við þjálfara, foreldraráð og framkvæmdastjóra deildarinnar
11. Ferðalög innanlands
Á hverju ári er fjöldi ferða hjá hverjum flokki um allt land. Knattspyrnudeild Sindra greiðir fyrir ódýrasta fararmáta vegna leikja í Íslandsmóti, annars greiða foreldrar fyrir ferðalög barna sinna. Ávallt skal reynt að fara á Sindrarútu, en annars er farið á einkabílum.
12. Búningar
Foreldraráð ásamt þjálfara bera ábyrgð á keppnistreyjum og stuttbuxum flokkanna. Sjá þarf til þess að búningar séu til staðar þegar verið er að keppa og sjá til þess að þeim sé skilað í íþróttahúsið að leik loknum. Iðkendur skulu sjálfireiga sokka, legghlífar og skó Til sölu er Sindra æfingagalli, vindgalli, flíspeysa og húfa. Iðkendum er ekki skylt að kaupa þennan fatnað en hvattir til þess. Foreldraráð hafa oft staðið að því að kaupa ákveðinn fatnað á allan flokkinn til að ná fram betri kjörum. Í því sambandi er góð regla að foreldraráð sjái um að fatnaður sé merktur til að auðvelda utanumhald fatnaðar á mótum.
13. Sjúkrataska
Hverjum flokki fylgir sjúkrataska (stærstu flokkanir gætu þurft tvær). Hverri sjúkratösku fylgir listi þar sem fram kemur hvað á að vera í töskunni. Foreldraráð þurfa að yfirfara töskuna af og til og sjá til þess að það sem á að vera í töskunni sé til staðar. Töskurnar eru geymdar í íþróttahúsinu.
14. Félagslegt starf innan flokksins
Yngriflokkaráð skal reyna af fremsta megni að skapa jákvæða ímynd barna- og unglingaknattspyrnu á vegum Sindra, bæði í drengja- og stúlknaflokkum, og stuðla að drengskap iðkenda, jafnrétti, vináttu og umburðarlyndi við náungann. Félagslegi þátturinn í starfi innan hvers flokks í barna- og unglingastarfinu er unninn í samvinnu við foreldraráð og þjálfara. Mjög mikilvægt er að leggja rækt við félagslega þáttinn, þ.e. brjóta upp hefðbundna starfsemi og gera eitthvað uppbyggilegt fyrir einstaklinginn eða hópinn. Dæmi um óhefðbundna starfsemi eru t.d. ferðalög, heimsókn, umræður (tjáning), iðkun annarra íþróttagreina og margt fleira. Þetta getur hver flokkur gert fyrir sig eða margir flokkar saman. Þessi óhefðbundna starfsemi getur bæði verið með og án þátttöku foreldra. Stefnt skal að nokkrum uppákomum á hverju keppnistímabili.
15. Skipulagning móta
Stefnt skal að þáttöku í kynjablönduðum mótum.
Hefð er fyrir því að 5. – 7. flokkur taki þátt í einu opnu móti að sumri.
Skipulagning þessa móta er alfarið í höndum þjálfara og foreldraráða. Við skipulagningu þátttöku í mótum þessum er best ef hægt er að virkja alla foreldra/forráðamenn til þátttöku í undirbúningi móts eða á meðan á móti stendur. Sjá þarf til þess að einn til tveir aðilar taki að sér fararstjórn og hafi þannig yfirumsjón og samræmi hlutverk annarra foreldra/forráðamanna. Tveir aðilar eru liðsstjórar með hverju liði, tveir eru í svefnnefnd og tveir í matarnefnd. Ef flokkur sendir fjögur lið (t.d. a, b, c og d lið) þá margfaldast framangreindur fjöldi með fjórum. Einnig er góð regla að einn til tveir aðilar sjái um myndatökur fyrir flokkinn á meðan á móti stendur. Liðsstjórar fylgja liðum sínum frá mætingu á mót og þangað til keppni líkur á daginn. Liðsstjórar ákveða þátttöku foreldra í að taka börnin frá skipulögðu starfi þeirra yfir daginn. Liðsstjórar afhenda börnin svefnnefnd sem sér um börnin til morguns, fer með börnin í morgunmat og afhendir liðsstjórum fyrir keppni dagsins. Matarnefnd sér um að útvega mat fyrir mót og lækka þannig uppihaldskostnað á mótum því yfirleitt er bara hluti máltíða innifalinn í mótsgjaldi. Matarnefndin hefur yfirumsjón með framreiðslu matar á meðan á mótum stendur og virkjar aðra foreldra til starfans. Engin börn í Sindra hafa þátttökurétt á mótum nema æfingagjald hafi verið greitt og engin börn hafa þátttökurétt nema með foreldri/forráðamanni.
16. Fjáraflanir í flokkum
Sækja þarf sérstaklega um leyfi til aðalstjórnar(framkvæmdastjóra) vegna ALLRA fjáraflana. Flokkunum er óheimilt að stofna bankabækur/reikninga í nafni Sindra eða viðkomandi deilda, heldur skal slíkt vera í nafni gjaldkera flokksins og gert í samráði við framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar.
Einstakir flokkar skulu ekki safna digrum sjóðum á milli ára, heldur skal reynt að safna eingöngu fyrir útlögðum kostnaði hvers keppnistímabils.
17. Stuðningur foreldra
Rannsóknir hafa sýnt að það mikilvægasta við uppeldi barna er að foreldrar verji tíma með börnum sínum og þekki foreldra vina barnanna. Knattspyrnudeild Sindra leggur mikla áherslu á það að iðkendur séu vinir bæði innan vallar og utan. Grundvöllur fyrir rekstri íþróttafélags er öflugt foreldrastarf. Þar sem öflugt foreldrastarf er til staðar er rekstur viðkomandi flokks yfirleitt í góðum farvegi. Þjálfari og stjórn fá þann stuðnings sem nauðsynlegur er og börnin æfa betur og eru viljugri að taka þátt ef foreldrar þeirra eru áhugasamir um íþróttaiðkun þeirra. Mjög mikilvægt er að foreldrar sýni börnum sínum stuðning og áhuga á því sem þau eru að gera. Spyrji t.d. hvernig gangi, mæti á æfingar og leiki og veiti þeim jákvætt aðhald.
10 góð ráð til foreldra barna í íþróttum
Sem foreldri getur þú tekið þátt í því að gera knattspyrnu barna og unglinga að eftirminnilegri og jákvæðri reynslu fyrir börnin. Hér eru nokkrar ábendingar sem vert er að skoða:
Mætið bæði á leiki og æfingar. Börnin æskja þess.
Hrósið öllum leikmönnum meðan á leik stendur. Ekki aðeins þínu barni.
Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. Ekki gagnrýna.
Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans. Ekki reyna að hafa áhrif á val hans á liði, skipulag og stjórnun æfinga og leikja.
Lítið á dómarann sem leiðbeinanda barnanna. Ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
Hafið áhrif og hvetjið börnin til þátttöku. Ekki þvinga þau.
Spyrjið hvort leikurinn hafi verið skemmtilegur og spennandi. Úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
Leitið eftir réttum og skynsamlegum útbúnaði. Ekki gera of miklar kröfur.
Sýnið starfi félagsins virðingu. Verið virk á foreldrafundum þar sem umræður fara fram um þjálfun og markmið, þar er ykkar vettvangur.
Gerið ykkur grein fyrir því að það eru börnin ykkar sem spila fótbolta, ekki þið.
Leyfið börnunum að njóta þess að vera börn.
18. Uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð Knattspyrnudeildar hefur verið haldin í september ár hvert þar sem iðkendur fá viðurkenningar fyrir afrek á tímabilinu. Í yngstu flokkunum fá allir viðurkenningu, en í eldri flokkum er valinn Sindramaður ársins, veitt viðurkenning fyrir mestar framfarir og besti félaginn valinn. Þjálfarar velja þessa aðila og fá aðilar úr hverjum árgangi viðurkenningu.
19. Myndir
Stefnt er að því að í lok tímabils skili þjálfari / foreldraráð mynd af liðinu/liðunum og leikmönnum til framkvæmdastjóra deildarinnar. Deildin geymir þessar heimildir í Sindrahúsinu og stefnt er að því að setja upp safn mynda auk þess sem iðkendur geta skoðað þær í félagsheimilinu. Slík gögn eru hugsuð sem heimildir um starf yngri flokkanna. Einnig eru myndir af liðum, mótum og frá æfingaleikjum settar inná heimasíðuna.
20. Heilræði til leikmanna
Mætingar:
Mæta tímanlega og mæta á allar æfingar, láta vita ef ekki er hægt að mæta á æfingu
Matur:
Borða hollan mat (líka morgunmat). Ekki borða rétt fyrir æfingu (síðasta lagi 30 mín fyrir æfingar) og muna að borða kolvetnaríkan mat eftir æfingu t.d gróf brauð, pasta, spagettí, kartöflur og banana. Drekka mikið af vatni. ATH. það minnkar árangur þjálfunar ef við borðum óhollan mat. Halda skal gosdrykkjum og sælgætisáti í lágmarki.
Hvíld og svefn:
Til að geta lagt sig 100% fram á æfingum þarf maður að vera vel hvíld/ur, svefn er besta hvíldin
Klæðnaður:
Vera klædd/ur eftir aðstæðum/veðri og snyrtileg/ur til fara. Skylt er að mæta til æfinga í íþróttafatnaði og kann iðkendum að vera vísað frá æfingum ef þeir mæta t.d. í gallabuxum, helst eiga leikmenn að mæta í Sindrafatnaði.
Andlegt:
Vera jákvæður og einbeittur, hugsa jákvætt, taka vel eftir og læra.
Á æfingu/leik:
Þú ert að æfa til að læra og til að geta lært sem mest þarf að taka vel eftir. Því meira sem þú leggur þig fram, því meiri framfarir.
Það sem þú gerir á æfingu gerir þú í leik. Ef þú gerir mistök ekki hengja haus heldur reyndu að gera betur næst.
Umgengnisreglur
Ávallt að ganga snyrtilega um öll íþróttamannvirki og fara eftir settum umgengnisreglum t.d nota ruslafötur
Skór/föt
Raða skóm í skóhillur Hengja föt á snaga
Eftir mót og æfingaleiki:
Brjóta saman búninga og ganga frá í búningatöskuna. Ekki taka búninga með sér heim.
Mikilvægt er að foreldrar merki allan fatnað, skó og töskur.
Hegðun
Í klefa
mæta 5-10 mínútum áður en æfing byrjar
sitja og bíða róleg/ur þangað til þjálfari kemur
ekki vera með bolta í klefa
Á velli/ í sal
hlýða fyrirmælum og taka vel eftir
Flautan/kall þjálfara ræður- ef það er flautað/kallað - stöðva - ég hlusta og læri
Kurteisi
bjóða góðan daginn/gott kvöld
þakka fyrir samveruna
vera jákvæður
vera flokknum/félaginu til sóma
bera virðingu fyrir félögunum/mótherjum
Talsmáti
tala kurteislega við hvort annað
ekki viðhafa neikvætt orðbragð
21. Forvarnir
Stefna knattspyrnudeildar Sindra í áfengis- og tóbaksvarnarmálum.
Knattspyrnudeild Sindra mun beita sér fyrir forvörnum gegn vímuefnanotkun.
Stjórn Knattspyrnudeildar Sindra skal miðla upplýsingum og standa fyrir fræðslu til félagsmanna, iðkenda og starfsmanna um skaðsemi tóbaks og vímuefna.
Leiðir að markmiðum.
a) Félagið líður ekki neyslu ólögmætra vímuefna á yfirráðasvæði sínu og er andvígt neyslu hvers konar annarra vímuefna á félagssvæðinu. Öll notkun tóbaks er bönnuð á félagssvæðinu.
b) Til að sem best verði tryggt að stefnu félagsins í forvörnum gegn vímuefnanotkun verði náð mun félagið leitast við að uppfræða þjálfara, leiðbeinendur og aðra starfsmenn þess og leiðbeina þeim um viðbrögð við neyslu iðkenda og annarra á félagssvæðinu.
c) Félagið beitir sér fyrir kynningu fyrir félagsmenn og forráðamenn iðkenda á stefnu sinni í forvörnum gegn tóbaks- og vímuefnanotkun.
d) Félagið leitast við að hafa samstarf við aðra aðila sem vinna að forvörnum gegn tóbaks- og vímuefnanotkun.
22. Agareglur fyrir barna- og unglingastarf
Iðkendur Sindra:
Mæta tímanlega á æfingar.
Skamma ekki samherja eða kenna þeim um eitthvað.
Deila ekki við dómara.
Umgangast andstæðinga sína af virðingu.
Umgangast þjálfara, félaga og forráðamenn Sindra af virðingu.
Sýna háttvísi og eru félaginu til sóma hvar sem þeir koma.
Hjálpast að við að ganga frá eftir sig.
Bera virðingu fyrir eigum félagsins.
Sýna starfsfólki íþróttahúsa og knattspyrnuvalla virðingu og kurteisi.
Ganga vel og snyrtilega um.
Eru ekki með læti í búningsklefum.
Eru til fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan.
Aðgerðir ef ekki er farið eftir reglum þessum:
Þjálfari ræðir við iðkanda.
Rætt við foreldra.
Iðkanda vísað af æfingu.
Iðkanda meinað að taka þátt í móti/mótum, leik/leikjum.
Heimilt er að meina iðkanda að æfa um tiltekinn tíma.


