Sindri áfram í bikarnum
Í gær keppti meistaraflokkur Sindra við Neista frá Djúpavogi í VISA-bikar karla. Leikurinn fór fram á Djúpavogi og lauk með sigri okkar manna 2 ? 1 og skoraði Sævar Gunnarsson bæði mörkin. Allt annað var að sjá til Sindraliðsins í þessum leik miðað við æfingaleikinn á móti Neista sem fram fór fyrir stuttu síðan. Menn voru greinilega staðráðnir í leggja allt í sölunnar í þessum leik og komast í aðra umferð bikarkeppninnar. Lið Neista skartaði tveimur nýjum leikmönnum frá Serbíu og Svartfjallalandi sem koma greinilega til með að styrkja liðið mikið. Næsti andstæðingur í bikarkeppninni verður Höttur og fer sá leikur fram 1. júní á Egilsstöðum.
Fyrsti leikur á Íslandsmótinu hjá mfl. karla er gegn Einherja á Vopnafirði 28. maí. Meistaraflokkur kvenna leikur sinn fyrsta leik í deildinni á Eskifjarðarvelli 25. maí gegn Fjarðarbyggð. 2. flokkur karla heldur til Vestmannaeyja 31. maí og leikur gegn ÍBV. 3. flokkur karla ríður á vaðið með heimaleiki þetta árið en þeir fá Spyrnir í heimsókn á Sindravelli 29. maí. 3. flokkur kvenna leikur við Einherja á Vopnafirði 2. júní og er leikið í 7 manna bolta. 4. flokkur karla leikur sinn fyrsta leik 13. júní gegn Þrótti í Reykjavík. En eins og áður hefur komið fram þá heldur 4. flokkurinn í æfinga- og keppnisferð til Færeyja í byrjun júní og er það ástæðan fyrir því að fyrsti leikur þeirra á Íslandsmótinu er svona seint. 4. flokkur kvenna fær Hött í heimsókn 1. júní og 5. flokkur karla leikur við Austra á Sindravöllum 9. júní.


