Sindra fréttir
Glæsilegur árangur 4. flokks kvenna
Í mótinu á Egilsstöðum léku stelpurnar fjóra leiki, þær unnu alla sína og enduðu með markatöluna 9 ? 2 sem verður að teljast býsna gott. Á leið sinni til sigurs lögðu þær lið Þróttar, Hugins, Leiknis og gestgjafanna í Hetti. Það verður virkilega gaman að fylgjast með því hvernig stelpurnar munu fóta sig í úrslitunum gegn stóru liðunum víðs vegar af landinu. Ekki er að efa miðað við frammistöðu þeirra fyrir austan að þær munu standa sig mjög vel og vera félaginu til sóma.


