Sindra fréttir
Frá sundæfingu

Mikilvægt að efla sunddeildina enn frekar

Sunddeild Sindra mun halda aðalfund sinn annað kvöld, miðvikudagskvöldið 15. febrúar. Á dagskránni verða venjuleg aðalfundarstörf ásamt sérstökum málefnum sunddeildarinnar. Ágætis gróska hefur verið í sunddeildinni síðustu ár og nú er spennandi tímar framundan hjá sundfólki á Hornafirði þegar farið er að hilla undir nýja sundlaug. Því er mikilvægt að efla sunddeildina enn frekar og búa fólk undir þær breytingar sem ný sundlaug hefur í för með sér. Stjórn sunddeildar Sindra hvetur áhugafólk um sund til að mæta á fundinn og minnt á að nýtt fólk er alltaf velkomið til starfa. Eins og fram hefur komið hér á vefnum þá hefur gamla sundlaugin verið klædd með nýjum dúk og verið opnuð eftir þá framkvæmd og æfingar hafnar að fullum krafti.

Aðalfundurinn fer fram í Sindrahúsinu við Hafnarbraut og hefst kl. 20:00


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica